Kyrrðardagar í Skálholti: Lífsgangan Helgina 19.-21. mars nk. verða haldnir kyrrðardagar undir yfirskriftinni Lífsgangan. Leiðbeinandi er séra Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Þetta stef hefur verið afar vinsælt í kyrrðardagastarfinu hér á síðustu árum. Hvaðan komum við, hvar stöndum við og hvert stefnum við? Á þessum dögum erum við leidd um æviveginn og hvött til að hugleiða þann þroskaferil sem í lífsgöngunni felst. Vegferð manneskjunnar frammi fyrir Guði er eitt af þeim stefum sem koma til umræðu á þessum dögum.
Þessi dagskrá hefst kl. 18.00 á föstudegi og henni lýkur um kl. 14.00 á sunnudegi. Rafræn skráning hér eða í síma 486 8870.
Verið hjartanlega velkomin á kyrrðardaga.
Verð fyrir gistingu í einsmannaherbergi með salerni og sturtu og fullu fæði aðeins 17.000.- kr.
Sjá nánar: http://skalholt.is Daglega frá 19. mars 2010 til 21. mars 2010 Skaftfellingamessa í Breiðholtskirkju í Mjódd Fimmta árið í röð er boðað til Skaftfellingamessu í Breiðholtskirkju í Mjódd n.k. sunnudag, 21. mars, kl. 14. Þessi árlega messa er orðin að mikilvægum lið í starfi Skaftfellingafélagsins í Reykjavík, sem kemur bæði að undirbúningi og framkvæmd hennar. Að þessu sinni munu kirkjukórar Vestur-Skaftafellssýslu taka þátt í messunni ásamt sóknarprestum sínum. Sr. Ingólfur Hartvigsson, sóknarprestur á Kirkjubæjarklaustri, prédikar, en núverandi og fyrrverandi prestar úr Skaftafellssýslum þjóna fyrir altari. Söngfélag Skaftfellinga mun syngja ásamt kirkjukórum Kirkjubæjarklausturs- og Víkurprestakalla. Stjórnendur eru Brian Haroldsson og Kári Gestsson. Að messu lokinni verður 70. ára afmæliskaffi Skaftfellingafélagsins í Skaftfellingabúð að Laugavegi 178. Þar verður ýmislegt rifjað upp frá 70 ára sögu félagsins auk þess sem kórarnir munu taka lagið.
Sjá nánar: http://breidholtskirkja.is 21. mars 2010 Skálholt og framtíð íslensku þjóðkirkjunnar Að loknu vel heppnuðu erindi síðustu helgi, um heiðursmerki Skálholts 1963 sem gleymdist að afhenda, er komið að næsta fyrirlestri í fyrirlestraröð um endurreisn Skálholts:
Dr. Pétur Pétursson forseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar Háskóla
Íslands, prófessor í kennimannlegri guðfræði.
"Skálholt og framtíð íslensku þjóðkirkjunnar"
Fyrirlesturinn fjallar um forsendur endurreisnar Skálholts sem biskupsseturs og kirkjumiðstöðvar og færir rök að því að þjóðkirkjan megi ekki hætta við hálfnað verk ef hún ætlar sér langt líf í landinu. Hann sér fyrir sér myndugan biskup í Skálholti, öfluga kirkjumiðstöð og akademíu í helgisiðafræðum og öðrum hagnýtum greinum guðfræðinnar.
Áður hafa Ásdís Ólafsdóttir haldið erindið: "Endurreisn með list. Verk Gerðar Helgadóttur og Nínu Tryggvadóttur í Skálholtskirkju", sönghópurinn Hljómeyki endurflutt íslensk kórverk sem hópurinn frumflutti áður á Sumartónleikum í Skálholti og Skúli Sæland flutt: "Skálholtsorðan sem gleymdist að afhenda"
Framundan eru svo viðburðir með Þorkeli Helgasyni um Sumartónleikana, Kristni Ólasyni og Hjalta Hugasyni svo eitthvað sé nefnt.
Sjá nánar: http://skalholt.is 21. mars 2010 |