Fjórða föstuvakan í röð fjögurra verður haldin í Hallgrímskirkju miðvikudagskvöldið 24. mars kl. 20. Stundin er byggð upp í kring um Passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar með söng og lestri en einnig gefur leikmaður vitnisburð um hlutverk trúarinnar í lífi sínu. Leitað er kyrrðar í tónlist og bæn. Allir eru velkomnir og boðið upp á samfélag í safnaðarsal á eftir.