Kyrrð og lífsgæði í Skálholti Þessir dagar eru ætlaðir þeim sem búa við annríki og álag og vilja staldra við, hvílast og endurnærast. Áhersla er lögð á kristna íhugun, ígrundun um lífsgæði í dagsins önn, slökun og útiveru. Dagarnir eru í umsjón Kristilegs félags heilbrigðisstétta (KFH). Bergþóra Baldursdóttir sjúkraþjálfari, Sigríður Hrönn Sigurðardóttir, guðfræðingur og hjúkrunarfræðingur, og Sigrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur leiða dagana.
Verð: 17.000 kr.
Sjá nánar: http://skalholt.is Daglega frá 26. mars 2010 til 28. mars 2010 Saltfiskdagar í Neskirkju Hinir árlegu saltfiskdagar hefjast á ný í Neskirkju föstudaginn 19. febrúar kl. 12. Eldaður verður suðrænn saltfiskur (bacalao). Ólafía Björnsdóttir matráður mun töfra fram magnaða rétti 6 föstudaga í röð.
Þér er hér með boðið að koma og njóta góðra rétta á sanngjörnu verði en hluti af verði hverrar máltíðar rennur til líknarmála. Fastan sem hófst í kjölfar sunnudagsins 14. febrúar og stendur í 7 vikur er forn hefð þar sem fólk er hvatt til að íhuga líf Krists, þjáningu hans og dauða. Föstur eru þekktar innan flestra trúarbragða. Kristnir menn hafa fastað á kjöt sbr. kjötkveðjuhátíð sem markar upphaf föstunnar.
Fastan hefur komið okkur Íslendingum vel í gegnum aldirnar því með henni skapaðist tækifæri til markaðssetningar á saltfiski í Evrópu, einkum í hinum kaþólsku löndum. Lífið er saltfiskur, segir í máltækinu. Saltfiskur hefur margskonar táknræna merkingu fyrir okkur. Hann skapar fólki vinnu og gjaldeyri, er neytt af trúuðu fólki í fjarlægum löndum sem kemur saman til að borða en máltíðin og borðsamfélagið er miðlægt í kristinni trú.
Saltfiskdagar í Neskirkju eru hugsaðir út frá þessari sögu og samhengi. Við komum saman til að njóta sjávarfangs, íhuga hin dýpri gildi lífsins og heyra fólk tjá sig um Lánin í lífinu, ekki lán með vöxtum og afborgunum, heldur lífslánið sjálft. Hvert er lánið mitt, hver eru lánin mín? Hvað hefur hlaupið á snærið hjá mér á lífsleiðinni? Hvað er ég þakklát/ur fyrir? Hvern föstudag mun gestur eða heimamaður í Neskirkju íhuga þessar spurningar. Vertu velkomin/n og taktu endilega með þér gesti!
Sjá nánar: http://neskirkja.is 26. mars 2010 Grensáskirkja Pálmasunnudagur 28. mars.
Morgunverður kl. 10, bænastund kl. 10:15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu og unglinga úr kirkjustarfi. Messa kl. 11. Altarisganga.Samskot til Hjálparstarfs krikjunnar. Messuhópur þjónar. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu.
Fermingarmessa kl. 13:30. Prestar sr. Ólafur Jóhannsson og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur og organisti er Árni Arinbjarnarson í báðum athöfnum.
Sjá nánar: http://www.kirkjan.is/grensaskirkja Daglega frá 25. mars 2010 til 28. mars 2010 |