Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 28. mars 2010

Pálmasunnudagur";Leiðbeiningar bænalífið"

Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju 2010Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2115

Kirkjulistahátíð 2010 verður haldin í Hallgrímskirkju frá 28. mars til 11. apríl. Þetta er 12. kirkjulistahátíðin sem Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir og hefur sett mark sitt á menningarlíf í Reykjavík síðan árið 1987. Einkunnarorð hátíðarinnar í ár, sem nú er í fyrsta sinn haldin um páska, eru Frá myrkri til ljóss. Með þeim orðum vill Kirkjulistahátíð undirstrika það markmið að tengja kirkjulist túlkun atburða kirkjuársins, sem með dymbilviku og páskum, þegar lífið ber sigurorð af dauða, tekst á við dýpstu viðfangsefni kristinnar trúar. Um leið vill Kirkjulistahátíð leitast við að vera farvegur birtu á erfiðum tímum í þjóðlífi Íslendinga.

Á hátíðinni fléttast listin saman við ríkulegt helgihald þessara daga. Boðið verður upp á kirkjulist fyrir alla aldurshópa í framsetningu framúrskarandi listafólks. Tónlistin er sem fyrr í öndvegi, en með myndlistarsýningu Ólafar Nordal og helgun bronshurðar Leifs Breiðfjörð fær myndlistin líka verðugan sess í dagskrá hátíðarinnar. Flytjendur skipta hundruðum, flestir innlendir, en í þetta sinn verða aðeins fáir erlendir gestir í hópi listflytjenda.

Hátíðin hefst á Pálmasunnudag með mikilli skrúðgöngu, þar sem þátttakendur endurlifa innreiðina í Jerúsalem, veifandi birkigreinum, syngjandi hósanna, líkt og tíðkast í kaþólskum löndum á suðlægari slóðum á þessum degi. Daglegt helgihald með valinni tónlist, sinfónía, óratóría, jass, gospel, stórkór barna, listasmiðja barnanna og listavaka unga fólksins mynda samfellda keðju viðburða í tvær vikur. Hátíðinni lýkur með flutningi Þýskrar sálumessu eftir Johannes Brahms, þar sem sorg og huggun eigast við í einu áhrifaríkasta listaverki sinnar tegundar.

Kirkjulistahátíð býður alla velkomna að njóta fjölbreyttrar dagskrár í í Hallgrímskirkju í tvær vikur frá 28. mars til 11. apríl. Aðstandendur Kirkjulistahátíðar eru Listvinafélag og sóknarnefnd Hallgrímskirkju, auk Biskups Íslands.

Sjá nánar: http://kirkjulistahatid.is

Daglega frá 28. mars 2010 til 11. apríl 2010

Kyrrð og lífsgæði í SkálholtiVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2103

Þessir dagar eru ætlaðir þeim sem búa við annríki og álag og vilja staldra við, hvílast og endurnærast. Áhersla er lögð á kristna íhugun, ígrundun um lífsgæði í dagsins önn, slökun og útiveru. Dagarnir eru í umsjón Kristilegs félags heilbrigðisstétta (KFH). Bergþóra Baldursdóttir sjúkraþjálfari, Sigríður Hrönn Sigurðardóttir, guðfræðingur og hjúkrunarfræðingur, og Sigrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur leiða dagana.

Verð: 17.000 kr.

Sjá nánar: http://skalholt.is

Daglega frá 26. mars 2010 til 28. mars 2010

EiðakirkjaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2104

Pálmasunnudagur, 28. mars 2010.

Messa kl. 14 - ferming. Prestur Þorgeir Arason.

Sjá nánar: http://www.kirkjan.is/mulaprofastsdaemi

28. mars 2010

GrensáskirkjaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2121

Pálmasunnudagur 28. mars.

Morgunverður kl. 10, bænastund kl. 10:15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu og unglinga úr kirkjustarfi. Messa kl. 11. Altarisganga.Samskot til Hjálparstarfs krikjunnar. Messuhópur þjónar. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu.

Fermingarmessa kl. 13:30. Prestar sr. Ólafur Jóhannsson og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir.

Kirkjukór Grensáskirkju syngur og organisti er Árni Arinbjarnarson í báðum athöfnum.

Sjá nánar: http://www.kirkjan.is/grensaskirkja

Daglega frá 25. mars 2010 til 28. mars 2010