Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 30. mars 2010

Leikjanámskeið á Eiðum í kyrruvikuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2111

Stjörnustundir í páskafríinu.

Í dymbilvikunni 2010 verður nú líkt og í fyrra boðið upp á þriggja daga leikjanámskeið á vegum safnaðanna á Héraði fyrir börn í 1.-4. bekk. Námskeiðið verður í Kirkjumiðstöðinni við Eiðavatn dagana 29.-31. mars (mán.-mið). Verði er mjög stillt í hóf og er meirihluti kostnaðar greiddur af söfnuðunum. Því er aðeins innheimt fæðisgjald, kr. 1.500 fyrir dagana þrjá.

Sr. Þorgeir Arason hefur veg og vanda af allri skipulagningu en honum til aðstoðar verða þær Dagbjört Diljá Einþórsdóttir og Freydís Edda Benediktsdóttir. Kristjana Björnsdóttir verður matráðskona.

Skráning og allar nánari upplýsingar eru hjá Þorgeiri í síma 895-3606 eða í tölvupósti: thorgeir.arason (hjá) kirkjan.is.

Athygli er vakin á því að aðeins 24 börn komast að á námskeiðinu.

Sjá nánar: http://www.kirkjan.is/mulaprofastsdaemi

Daglega frá 29. mars 2010 til 31. mars 2010

Krakkar í KópavogskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2118

Í dymbilviku verður í Kópavogskirkju leikjanámskeið fyrir 6 -7 ára börn. Námskeiðið verður haldið í Borgum, safnaðarheimili kirkjunnar (skáhalt á móti Gerðarsafni) mánudag til miðvikudags frá klukkan 9-12 fyrir 6 ára börn og klukkan 13-16 fyrir 7 ára börn. Umsjón með námskeiðinu hafa þær Hafdís Huld Þrastardóttir, tónlistarmaður og Inga Harðardóttir, guðfræðinemi ásamt fleirum.

Þátttökugjald er 1000 krónur fyrir hvert barn en eru þau beðin um að koma með eigið nesti. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is og skráningu lýkur fimmtudaginn 25. mars n.k. (tilgreina skal fullt nafn, kt., heimilsfang barns og foreldris sem og símanúmer foreldris). Hver dagur hefst á helgistund en síðan fer helmingur hópsins í könnunnar- og efnisöflunarferð í nágrenni kirkjunar og hinn helmingurinn vinnur listaverk tengd atburðum dymbilvikunar og upprisu Jesú. Eftir nestistíma skipta hóparnir um stað.

Miðvikudaginn 31. mars verður svo uppskeruhátíð námskeiðsins og hefst hún klukkan 18:00 með helgistund í kirkjunni en síðan er haldið í Borgir og afrakstur vikunnar sýndur ættingjum og vinum.

Daglega frá 29. mars 2010 til 31. mars 2010

Messur í Grensáskirkju í kyrruvik og um páska.Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2120

Skírdagur 1. apríl. Messa kl. 20. Altarisganga. Altarið afskrýtt að lokinni messu.

Föstudagurinn langi 2. apríl. Guðsþjónusta kl. 11. Píslarsagan lesin.

Páskadagur 4. apríl. Fagnaðarguðsþjónusta kl. 8:00.Sameiginlegur hátíðarmorgunverður að lokinni guðsþjónustu.

Hátíðarguðsþjónusta Kirkju heyrnarlausra kl. 14:00. Prestur sr. Miyako Þórðarson.

Kaffi á eftir.

Organisti er Árni Arinbjarnarson, kirkjukór Grensáskirkju syngur og prestur er sr. Ólafur Jóhannsson í öllum athöfnum nema annað sé tekið fram.

Annar í páskum 5. apríl.Fermingarmessa kl. 10:30. Prestar sr. Ólafur Jóhannsson og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir.

Heimasíðar kirkjunnar er: http://www.kirkjan.is/grensaskirkja

Sjá nánar: http://www.kirkjan.is/grensaskirkja

Daglega frá 29. mars 2010 til 6. apríl 2010

Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju 2010Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2115

Kirkjulistahátíð 2010 verður haldin í Hallgrímskirkju frá 28. mars til 11. apríl. Þetta er 12. kirkjulistahátíðin sem Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir og hefur sett mark sitt á menningarlíf í Reykjavík síðan árið 1987. Einkunnarorð hátíðarinnar í ár, sem nú er í fyrsta sinn haldin um páska, eru Frá myrkri til ljóss. Með þeim orðum vill Kirkjulistahátíð undirstrika það markmið að tengja kirkjulist túlkun atburða kirkjuársins, sem með dymbilviku og páskum, þegar lífið ber sigurorð af dauða, tekst á við dýpstu viðfangsefni kristinnar trúar. Um leið vill Kirkjulistahátíð leitast við að vera farvegur birtu á erfiðum tímum í þjóðlífi Íslendinga.

Á hátíðinni fléttast listin saman við ríkulegt helgihald þessara daga. Boðið verður upp á kirkjulist fyrir alla aldurshópa í framsetningu framúrskarandi listafólks. Tónlistin er sem fyrr í öndvegi, en með myndlistarsýningu Ólafar Nordal og helgun bronshurðar Leifs Breiðfjörð fær myndlistin líka verðugan sess í dagskrá hátíðarinnar. Flytjendur skipta hundruðum, flestir innlendir, en í þetta sinn verða aðeins fáir erlendir gestir í hópi listflytjenda.

Hátíðin hefst á Pálmasunnudag með mikilli skrúðgöngu, þar sem þátttakendur endurlifa innreiðina í Jerúsalem, veifandi birkigreinum, syngjandi hósanna, líkt og tíðkast í kaþólskum löndum á suðlægari slóðum á þessum degi. Daglegt helgihald með valinni tónlist, sinfónía, óratóría, jass, gospel, stórkór barna, listasmiðja barnanna og listavaka unga fólksins mynda samfellda keðju viðburða í tvær vikur. Hátíðinni lýkur með flutningi Þýskrar sálumessu eftir Johannes Brahms, þar sem sorg og huggun eigast við í einu áhrifaríkasta listaverki sinnar tegundar.

Kirkjulistahátíð býður alla velkomna að njóta fjölbreyttrar dagskrár í í Hallgrímskirkju í tvær vikur frá 28. mars til 11. apríl. Aðstandendur Kirkjulistahátíðar eru Listvinafélag og sóknarnefnd Hallgrímskirkju, auk Biskups Íslands.

Sjá nánar: http://kirkjulistahatid.is

Daglega frá 28. mars 2010 til 11. apríl 2010

Stabat mater eftir DvořákVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2119

Þriðjudaginn 30. mars kl. 20 verður Stabat Mater eftir Antonín Dvořák flutt í upprunalegri útgáfu frá 1876 fyrir kór, einsöngvara og píanó. Tónleikarnir fara fram í Áskirkju og eru um klukkutími að lengd.

Textinn, sem kveðinn var af munkinum Jacobone da Tode, fjallar um móður Guðs er hún sá son sinn hanga á krossinum. Þetta var fyrsta stóra trúarlega tónsmíðs Dvořáks en hann hóf smíði verksins skömmu eftir fráfall dóttur sinnar.

Lengi vel var talið að þetta væru bara drög að hljómsveitarútgáfunni en allur frágangur á handritinu virðist benda til þess að Dvořák hafi hugsað þetta fyrir píanó. Verkið var hins vegar ekki flutt þar sem hann þurfti að sinna öðrum verkefnum með aukinni frægð. Ári síðar létust svo hin tvö börnin hans með mánaðar millibili. Hinn 36 ára barnlausi Dvořák bætti við þremur köflum og útsetti verkið fyrir hljómsveit og er það sú útgáfa sem oftast hefur verið flutt. Miroslav Srnka vann þá útgáfu sem flutt verður í Áskirkju upp úr handriti tónskáldsins.

Flytjendur eru Guðríður St. Sigurðardóttir (píanó), Hallveig Rúnarsdóttir (sópran), Jóhanna Ósk Valsdóttir (alt), Einar Clausen (tenór), Benedikt Ingólfsson (bassi) og Kór Áskirkju. Stjórnandi er Magnús Ragnarsson.

Miðar fást virka daga kl. 10-15 í Áskirkju. Verð 2500 kr.

30. mars 2010