AlÞjóðlegur bænadagur kvenna |
Grensáskirkja. Sunnudagur 7. mars. Æskulýðsdagurinn. Morgunverður kl. 10. Bænastund kl. 10:15. Barnastarf kl. 11. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til ABC-barnahjálpar. Stúlknakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Organisti Ásta Haraldsdóttir. Unglingar úr UD-starfinu aðstoða. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu.
Sjá nánar: http://www.kirkjan.is/grensaskirkja Daglega frá 3. mars 2010 til 8. mars 2010 Saltfiskdagar í Neskirkju Hinir árlegu saltfiskdagar hefjast á ný í Neskirkju föstudaginn 19. febrúar kl. 12. Eldaður verður suðrænn saltfiskur (bacalao). Ólafía Björnsdóttir matráður mun töfra fram magnaða rétti 6 föstudaga í röð.
Þér er hér með boðið að koma og njóta góðra rétta á sanngjörnu verði en hluti af verði hverrar máltíðar rennur til líknarmála. Fastan sem hófst í kjölfar sunnudagsins 14. febrúar og stendur í 7 vikur er forn hefð þar sem fólk er hvatt til að íhuga líf Krists, þjáningu hans og dauða. Föstur eru þekktar innan flestra trúarbragða. Kristnir menn hafa fastað á kjöt sbr. kjötkveðjuhátíð sem markar upphaf föstunnar.
Fastan hefur komið okkur Íslendingum vel í gegnum aldirnar því með henni skapaðist tækifæri til markaðssetningar á saltfiski í Evrópu, einkum í hinum kaþólsku löndum. Lífið er saltfiskur, segir í máltækinu. Saltfiskur hefur margskonar táknræna merkingu fyrir okkur. Hann skapar fólki vinnu og gjaldeyri, er neytt af trúuðu fólki í fjarlægum löndum sem kemur saman til að borða en máltíðin og borðsamfélagið er miðlægt í kristinni trú.
Saltfiskdagar í Neskirkju eru hugsaðir út frá þessari sögu og samhengi. Við komum saman til að njóta sjávarfangs, íhuga hin dýpri gildi lífsins og heyra fólk tjá sig um Lánin í lífinu, ekki lán með vöxtum og afborgunum, heldur lífslánið sjálft. Hvert er lánið mitt, hver eru lánin mín? Hvað hefur hlaupið á snærið hjá mér á lífsleiðinni? Hvað er ég þakklát/ur fyrir? Hvern föstudag mun gestur eða heimamaður í Neskirkju íhuga þessar spurningar. Vertu velkomin/n og taktu endilega með þér gesti!
Sjá nánar: http://neskirkja.is 5. mars 2010 Bænadagssamkoma í Digraneskirkju Alþjóðlegur bænadagur kvenna er haldinn hátíðlegur um allan heim og um allt land föstudaginn 5. mars. Á höfuðborgarsvæðinu er bænadagssamkoman í Digraneskirkju í Kópavogi. Sagt verður frá Kamerún í máli og myndum, samkirkulegt kvennaband leiðir sönginn og konur frá mörgum kristnum trúfélögum flytja bænir og lestra. Stundin hefst kl. 20 og þið eruð öll velkomin. Fylgist með auglýsingum víðar um land.
Sjá nánar: http://www.worlddayofprayer.net 5. mars 2010 |