Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 7. mars 2010

Þriðji sunnudagur í föstu (Okuli) — Æskulýðsdagurinn

Leiðbeiningar bænalífið

Grensáskirkja. Sunnudagur 7. mars. Æskulýðsdagurinn.Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2085

Morgunverður kl. 10. Bænastund kl. 10:15. Barnastarf kl. 11. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til ABC-barnahjálpar. Stúlknakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Organisti Ásta Haraldsdóttir. Unglingar úr UD-starfinu aðstoða. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu.

Sjá nánar: http://www.kirkjan.is/grensaskirkja

Daglega frá 3. mars 2010 til 8. mars 2010

GuðsþjónustaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2081

Guðsþjónusta kl. ll við hæfi allrar fjölskyldunnar í Egilsstaðakirkju. Barnakórinn leiðir sönginn.

Unglingar með dansatriði og lestur. Þorgeir Arason prédikar.

Samstarf presta á Héraði

7. mars 2010

Lát trú þína bera ávöxtVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2080

Fyrirsögnin hér að ofan er yfirskrift æskulýðsdagsins. Á sunnudaginn munu æskulýðsfélagar og fermingarbörn sjá að miklu leyti um hina föstu liði messunnar. Stuttmynd sem krakkar í TTT hafa unnið að undanförnu verður frumsýnd og ekki er ólíklegt að við fáum gesti í heimsókn. En hvernig látum við trúna bera ávöxt?

Sjá nánar: http://www.breidholtskirkja.is

7. mars 2010

Æskulýðsdagurinn í ÁrbæjarkirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2071

Lát trú þína bera ávöxt

Æskulýðsdagurinn 7.mars 2010- Léttmessa kl 20.00

Sunnudaginn 7.mars er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar, en sá dagur er tileinkaður ungu fólki í kirkjunni. Þann dag er léttmessa kl.20.00 og eiga tilvonandi fermingabörn að mæta ásamt fjölskyldum sínum. Yfirskriftin í ár er Lát trú þína bera ávöxt og á hún að minna okkur sem erum kristin á ábyrgð okkar gagnvart þeim sem búa við erfiðari aðstæður en við gerum og ætlum við að skoða mannréttindayfirlýsingu- og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Fimmtudaginn 4.mars 20.15-22.00 ætlum við að undirbúa messuna og þau fermingabörn sem hafa áhuga á að taka þátt í undirbúningi eru hvött til að mæta hingað í safnaðarheimili kirkjunnar. Okkur vantar aðstoð við að útbúa skreytingar fyrir kirkjuna og svo vantar krakka í söng og tónlistarhóp.

Kær kveðja,

Prestar og starfsfólk Árbæjarkirkju

Sjá nánar: http://arbaejarkirkja.is

7. mars 2010

Æskulýðsdagurinn í KeflavíkurkirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2078

Barnakór Keflavíkurkirkju og barnakór KFUM og KFUK syngja við guðsþjónustuna.

Sjá nánar: http://keflavikurkirkja.is

7. mars 2010

ÆskulýðsdagurinnVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2086

Messa í Reykjakirkju.

Barna- og æskulýðskórinn syngur undir stjórn Friðriks Þórs Jónssonar. Kvartett ungra stúlkna flytur lög.

Kirkjukórarnir syngja. Tom Higgerson og Jóhanna Marín stýra.

Saga dagsins. Bassaleikur.

Kirkjukaffi í Árgarði að athöfn lokinni.

Sjá nánar: http://kirkjan.is

7. mars 2010

Æskulýðsdagurinn í KálfatjarnarkirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2083

Sérstök áhersla verður á unga fólkið í guðsþjónustunni 7. mars kl. 14 í Kálfatjarnarkirkju. Unglingar úr fermingarstarfinu taka virkan þátt á ýmsan hátt, þar á meðal sýna þau helgileik. Kór Kálfatjarnarkirkju leiðir léttan söng undir stjórn Franks Herlufsen organista. Prestur sr. Bára Friðriksdóttir. Allir sem eru ungir í anda eru hjartanlega velkomnir. Kaffi og kleinur á eftir í þjónustuhúsinu.

7. mars 2010

Léttmessa í BakkagerðiskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2076

Í tilefni æskulýðsdagsins verður messa í léttari kantinum í Bakkagerðiskirkju, Borgarfirði eystra. Hafþór Snjólfur Helgason leiðir tónlistina ásamt nemendum sínum og kirkjukórnum. Einfaldir sálmar í léttum búningi. Krakkar úr TTT- og fermingarstarfinu lesa upp og Stefán Bogi Sveinsson framkvstj. UÍA predikar. Prestur er Þorgeir Arason. Allir velkomnir.

7. mars 2010

Batamessa í Ástjarnarkirkju, Kirkjuvöllum 1Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2082

Batamessa er hugsuð fyrir12-spora fólk og alla sem vilja rækta trú sína. Gefið er sérstakt rými fyrir trúariðkun. Vitnisburður 12-spora vinar, fræðsla um heilagan anda, léttur söngur, löfgjörð og fyrirbæn. Fólk í 12-sporastarfi kirkjunnar aðstoðar. Gott samfélag á eftir í messukaffinu. Vertu velkomin (n) að upplifa nýja nálgun í helgihaldi.

7. mars 2010

Æskulýðsmessa í LágafellskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2077

Æskulýðsmessa með þátttöku Aftureldingar og tónlistarskólans. Kvöldvaka í safnaðarheimilinu að aflokinni messu. Súpa og brauð - vegleg dagskrá

Sjá nánar: http://www.lagafellskirkja.is

7. mars 2010

Bænarý í NeskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2088

ÆSKR stendur fyrir margmiðlunarguðsþjónustu fyrir æskulýðsfélögin í Neskirkju á æskulýðsdaginn kl. 20.00. Allir velkomnir.

Margmiðlunarguðsþjónusta er nýtt fyrirbrigði á Íslandi. Þar verður öll möguleg tækni s.s. SMS, skjátækni, hljóð, tölvubænir, Skype o.fl nýtt við helgihaldið. Það er ljóst að í guðsþjónustunni munu gestir upplifa eitthvað alveg nýtt og einstakt sem sýnir að helgihaldið á vel við nútímann.

Ekki láta þig vanta í Neskirkju sunnudaginn 7. mars.

Ps. Taktu farsímann með ...

Sjá nánar: http://kirkjan.is/frett/2010/03/10143

7. mars 2010