Kynning á Eurodiaconia og Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun Opin fundur verður 9. mars kl. 12-13 í Grensáskirkju til kynningar á Evrópusamtökum kærleiksþjónustustofnana og kirkna, Eurodiaconia. Einnig verður Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun kynnt. Hægt verður að fá hádegishressingu.
Dagskrá:
I. Eurodiaconia sem eru samtök félaga og kirkna í Evrópu sem sinna kærleiksþjónustu. Mjög fjölbreytt starf er unnið af aðildarfélögum. Innan vébanda þeirra starfa djáknar, prestar og ýmsar fagstéttir. Eitt af megin markmiðum Eurodiaconia er að hafa áhrif á stefnumótun og áherslur Evrópusambandsins. Eurodiaconia berst fyrir félagslegum réttindum fólks og að fjármagni sé varið til stuðnings varnarlausu fólki. Þjóðkirkjan gekk í Eurodiaconia 2007. Meðlimir koma frá 21 landi. Skrifstofa Eurodiaconia er í Brussel og eru tengsl við Evrópusambandið mikil http://www.eurodiaconia.org/ . Þessi samtök geta stutt okkur til að efla kærleiksþjónustuna og styrkt okkur til góðra verka. Kynnir verður Pétur Björgvin Þorsteinsson.
II. Evrópusambandið hefur gert 2010 að Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun (2010 European Year for Combating Poverty and Social Exclusion); www.2010againstpoverty.eu/opencms/?langid=en
Félags- og tryggingamálaráðuneytið ber ábyrgð á framkvæmd þessa árs hér á landi. Kirkjan er velkomin með. Við höfum svo sannarlega erindi í aðstæðunum sem hér ríkja. Kynnir verður Vilborg Oddsdóttir hjá Hjálparstarfinu.
Kærleiksþjónustusvið biskupsstofu og starfshópur um Eurodiaconia standa að fundinum.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/di 9. mars 2010 |