Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 17. júní 2010

Þjóðhátíðardagurinn

Leiðbeiningar bænalífið

Grindavíkurkirkja- Guðsþjónusta kl. 10:00Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2270

Petrína Mjöll Jóhannesdóttir predikar og se. Elínborg Gísladóttir þjónar fyrir altari.Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn.

Fjallkonan er Elínborg Ingvarsdóttir.

Kaffiveitingar eftir messu.

17. júní 2010

Grindavíkurkirkja- Guðsþjónusta kl. 10:00Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2269

Guðsþjónusta kl. 10. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir predikar og sr. Elínborg Gísladóttir þjónar fyrir altari. Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn.

Fjallkonan er Elínborg Ingvasrdóttir

17. júní 2010

Hátíðarmessa í Áskirkju í FellumVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2277

Hátíðarmessa verður í Áskirkju í Fellum á þjóðhátíðardaginn. Messan hefst kl. 11. Í messunni verða 6 drengir fermdir.

Sóknarpresturinn, Lára G. Oddsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Kristján Gissurarson og kór Áskirkju í Fellum syngur.

17. júní 2010

Messa í ÍsafjarðarkirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2232

Messa í Ísafjarðarkirkju á lýðveldisdaginn klukkan ellefu. Sungnir verða hátíðarsöngvar Bjarna Þorsteinssonar.

Sjá nánar: http://kirkjan.is/isafjardarkirkja

17. júní 2010

Messa í MiklabæjarkirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2271

Messað verður í Miklabæjarkirkju kl. 11. Fólk er hvatt til að mæta í upphlut, peysufötum og hátíðarbúningi. Eftir messu verður haldið til frekari hátíðarhalda í Héðinsminni,þar sem Kvenfélag Akrahrepps og Akrahreppur bjóða upp á veitingar.

17. júní 2010

Safnaðarheimilið í SandgerðiVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2272

Þjóðhátíðarmessa kl. 11.00. Karlakór Keflavíkur syngur. Konur hvattar til að mæta í þjóðbúningum. Allir velkomnir.

17. júní 2010

Fermingarmessa og nýtt orgel tekið í notkunVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2273

Þjóðhátíðardaginn 17. júní verður fermingarmessa í Hofskirkju.

Fermdar verða: Anna Dóra Sigurðardóttir, Debóra Dögg Jóhannsdóttir,

Karítas Anja Magnadóttir og Thelma Guðný Ragnasdóttir.

Við guðsþjónustuna verður nýtt orgel og altarisdúkur tekin í notkun - gjafir sem söfnuðunum hafa verið gefnar. Sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir, prófastur Múlaprófastsdæmis, helgar orgelið og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti

Sjá nánar: http://www.kirkjan.is/hof

17. júní 2010

HátíðarguðsþjónustaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2274

Hátíðarguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 13:30 í umsjá sr. Láru G. Oddsdóttur. Skátar standa heiðursvörð. Organisti: Tryggvi Hermannsson.

17. júní 2010

Messa í HrafneyrarkapelluVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2234

Í kapellunni á Hrafnseyri þar sem Jón Sigurðsson var fæddur er föst hefð fyrir því að messað sé á lýðveldisdaginn. Er það liður í hátíðahöldunum, sem Hrafnseyrarnefnd stendur fyrir.

17. júní 2010

Samkirkjuleg bænastund í HallgrímskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2268

Efnt verður til samkirkjulegrar bænastundar fyrir Íslandi í Hallgrímskirkju í Reykjavík á 17. júní kl. 16. Flutt verður tónlist frá kl. 15.45 og síðan borin fram níu bænarefni með röddum jafnmargra kristinna trúfélaga og hópa. Allir eru velkomnir, líka börnin, sem fá söng við sitt hæfi. Að bænastundinni stendur hópur fólks sem komið hefur vikulega saman í Friðrikskapellu til að biðja fyrir íslensku þjóðinni og ráðamönnum hennar undanfarin tvö ár.

17. júní 2010