Passíusálmar í Guðríðarkirkju Sjálfboðaliðar lesa Passíusálma Hallgríms Péturssonar í Guðríðarkirkju frá 10-14.
Sjá nánar: http://grafarholt.is 2. apríl 2010 Passíusálmar í Guðríðarkirkju Sjálfboðaliðar lesa Passíusálma Hallgríms Péturssonar í Guðríðarkirkju frá 10-14.
Sjá nánar: http://grafarholt.is 2. apríl 2010 Passíusálmalestur í Húsavíkurkirkju frá kl. 11 árdegis Leikmenn lesa Passíusálma Hallgríms Péturssonar ásamt sóknarpresti. Klassísk tónlist leikin af geisladisk eftir fimmta hvern sálm. Velkomin að líta við yfir daginn og hlýða á lesturinn.
Sjá nánar: http://www.husavikurkirkja.is 2. apríl 2010 Lestur Passísálma í Hjarðarholtskirkju Á föstudaginn langa, 2. apríl, munu Björn Stefán Guðmundsson, Jóhannes Haukur Hauksson, Steinunn Matthíasdóttir, Íris Björg Guðbjartsdóttir, Sesselja Árnadóttir og Eggert Aðalsteinn Antonsson lesa Passíusálma Hallgríms í Hjarðarholtskirkju. Lesturinn hefst kl. 13:30 og tekur um 4,5 klst. Einnig verður leikin tónlist. Þetta er í sjötta sinn hér sem sálmarnir eru lesnir í heild sinni á þennan hátt. Kaffi og með því verður í þjónustuhúsinu. Allir eru eins og ávallt hjartanlega velkomnir. Það er í lagi að stoppa stutt, ef þannig stendur á og jafnvel koma aftur.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/dalaprestakall/ 2. apríl 2010 Stabat mater íhugun í Guðríðarkirkju Harmljóð Maríu við krossinn e. Pergolesi verður flutt í heild sinni í Guðríðarkirkju á föstudaginn langa af Hlín Pétursdóttur Behrens, Gunnhildi Höllu Baldursdóttur og Julian Edward Isaacs og tekur u.þ.b. klukkutíma í flutningi. Séra Sigríður les úr íslenskri þýðingu ljóðsins og leiðir bænagjörð. Verkið er eitt vinsælasta verk tónlistarsögunnar, þegar litið er til tónlistar sem tengist dymbilvikunni. Ljóðið er frá 13. öld og íhugar þjáningu móður Jesú þegar við dauða barns síns. Pergolesi var fæddur 1710 og er því 300 ára afmæli hans í ár.
Sjá nánar: http://grafarholt.is 2. apríl 2010 Garpsdalskirkja Helgistund í Garpsdalskirkju. Píslarsagan samkvæmt Jóhannesarguðspjalli fléttuð við valda Passíusálma.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/reykholar/ 2. apríl 2010 Krossljósastund í Guðríðarkirkju Krossljósastund kl. 20-21 í umsjá séra Sigríðar Guðmarsdóttur og Sigurbjargar Þorgrímsdóttur. Píslarsagan lesin og sjö orð Krists á krossinum. Organisti Ester Ólafsdóttir, kór Guðríðarkirkju syngur.
Sjá nánar: http://grafarholt.is 2. apríl 2010 |