Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 29. apríl 2010

Kyrrðardvöl að vori í SkálholtiVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2112

Skálholtsskóli býður upp á 9 daga kyrrðardvöl

dagana 28. apríl - 6. maí 2010

Á þessum kyrrðardögum verður áherslan á kristnu íhugunaraðferðina Centering prayer. Kyrrðardagarnir eru skipulagðir þannig að þeir gefa þér einstakan möguleika á að dýpka þá iðkan sem þú hefur tamið þér.

Þáttakendur skuldbinda sig til að taka þátt á öllum dögunum. Ekki er hægt að taka þátt hluta af dagsskránni

Leiðbeinandi Patricia Johnson, frá Snowmass, Colorado, USA.

Henni til aðstoðar verður Ragnheiður Jónsdóttir.

Skráning á vef Skálholtsstaðar: www.skalholt.is og í síma 486 8870.

Hér eru nokkrar upplýsingar varðandi dagana:

Dagskráin dag hvern byggist upp á 3 klst. CP íhugun (1klst x 3.), tveggja klst. fyrirlestrum með Thomasi Keating á DVD, daglegri tíðargjörð í Skálholtsdómkirkju, einkasamtölum við leiðbeinendur og tíma til hvíldar og/eða útivistar.

Kyrrðin er mikilvægur þáttur dvalarinnar. Við göngum inn í þögnina eftir samveru fyrsta kvöldið, höldum henni áfram til næsta dags, rjúfum þögnina við kvöldverðarborðið, og göngum á ný inn í þögnina eftir máltíðina. Þannig líður hver dagur, einn af öðrum. Við fyrirlestrana er einnig gert ráð fyrir spurningum og svörum vegna þýðinga á efni. Hver þáttakandi tekur ábyrgð á að átta sig á eigin þörf og gildi þess að vera í kyrrð/þögn. Við biðjum alla um að virða þarfir annarra til kyrrðar.

Ekki er gert ráð fyrir því að þátttakendur noti síma og tölvur á kyrrðardögum.

Undirbúningur fyrir dagana er mikilvægur. Hann getur gagnast þér og öðrum þáttakendum. Þess vegna mælum við með að þátttakendur hafi iðkað Centering Prayer, helst í 6 mánuði. Einnig hvetjum við þáttakendur til að lesa bókina ,,Open mind, open heart eftir Thomas Keating. Gott er að taka með sér púða eða teppi, inniskó og þægilegan klæðnað.

Kynningu á Centering prayer er hægt að sækja í CP bænahópunum sem eru starfandi á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Ragnheiði: ragnheidur.jonsdottir@kirkjan.is eða í Skálholtsskóla sími 4868870

Daglega frá 28. apríl 2010 til 6. maí 2010