Guðsþjónusta Árbæjarkirkju Guðþjónusta Árbæjarkirkju sunnudaginn 1 ágúst kl.11.00. Sjá nánar á heimasíðu Árbæjarkirkju.
Sjá nánar: http://www.arbaejarkirkja.is 1. ágúst 2010 Guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju Prestur er sr. Jóhanna I Sigmarsdóttir
Um létta tónlist í guðsþjónustunni sér Þorvaldur Halldórsson
Sjá nánar: http://kirkjan.is/mulaeprofastsdaemi 1. ágúst 2010 Guðsþjónusta í Lágafellskirkju Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11
Prestur:sr. Skírnir Garðarsson
1. ágúst 2010 Messa í Hóladómkirkju Messa klukkan 11 prestur sr. Ursúla Árnadóttir, Kristín Arnardóttir djákni prédikar.
Sjá nánar: http://kirkjan.is/holadomkirkja 1. ágúst 2010 Ráðsmennska og umhverfi- útimessa við Reynisvatn í Grafarholti Ráðsmennska og umhverfi. Útimessa verður í skógarlundinum Sæmundarseli við Reynisvatn í Grafarholti. Lagt verður út frá guðspjallinu um ráðsmanninn í tengslum við umhverfisvitund og kristna náttúrusýn. Ættjarðarsálmar, kakó og kleinur. Prestur séra Sigríður Guðmarsdóttir, meðhjálparar Aðalsteinn Dalmann Októsson og Sigurður Óskarsson en söngurinn er í höndum safnaðarins.
Sjá nánar: http://grafarholt.is 1. ágúst 2010 Hvað varð um Melkorku? Er hún í Búðardal?
Dagskrá hefst í Leifsbúð sunnudaginn 1. ágúst kl 12:30 fyrir unga og aldna um konungsdótturina Melkorku sem numin var á brott frá Írlandi og flutt í Dali. Farið um söguslóðir í Laxárdal á fjölskyldubílnum í fylgd séra Jakobs Ágústs Hjálmarssonar og saga Melkorku rakin og upplifuð.
Sjá nánar: http://jakob.annall.is 1. ágúst 2010 Messa í Brjánslækjarkirkju Sunnudaginn 1. ágúst kl. 13 verður messa í Brjánslækjarkirkju.
1. ágúst 2010 Messa í Nauteyrarkirkju Sunnudaginn 1. ágúst kl. 13 verður messað í Nauteyrarkirkju við innanvert Ísafjarðardjúp.
1. ágúst 2010 Bænhúsið að Núpsstað Guðsþjónusta verður um verslunarmannahelgina í bænhúsinu að Núpsstað í Skaftárhreppi sunnudaginn 1. ágúst nk. og hefst kl. 14:00.
Séra Haraldur M. Kristjánsson sóknarprestur í Vík prédikar og þjónar fyrir altari.
Brian Roger Haroldsson leikur á orgel.
Félagar úr kór Prestsbakkakirkju og Ásakórnum leiða söng.
Hestamenn eru hvattir til þess að koma ríðandi til messu. Farin verður hópreið frá Kálfafelli í Fljótshverfi og lagt af stað þaðan kl. 12.30.
Fjölmennum til guðsþjónustunnar og eigum þar notalega stund.
Sóknarprestur.
Sjá nánar: http://www.klaustur.is 1. ágúst 2010 Messa að Ábæ í Austurdal. Messa 1. ágúst kl. 14. Organisti Thomas R.Higgerson. Forsöng syngja konur úr kirkjukórnum vestan Vatna. Prédikun: Agnar H. Gunnarsson, oddviti Akrahrepps. Sóknarpresturinn þjónar fyrir altari.
Sjá nánar: http://kirkjan.is 1. ágúst 2010 Messa Þingeyrum Yfir hásumarið skiptast prestar héraðsins á að messa hvern sunnudag í þessari fallegu kirkju með ferðafólki og heimamönnum. Að þessu sinni þjónar sr. Guðni Þór Ólafsson, Melstað. Almennur söngur. Organisti Pálína F. Skúladóttir
1. ágúst 2010 Tónleikar í Hóladómkirkju Tónleikar klukkan 14 Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran og Hannes Guðrúnarson gítaleikari.
Aðgangur ókeypis
Velkomin heim að Hólum
Sjá nánar: http://kirkjan.is/holadomkirkja 1. ágúst 2010 Útimessa í Skógarkoti Sunnudaginn í verslunarmannahelgi er útimessa í Skógarkoti, nema ef gerir mikla rigningu, þá verður messan í Þingvallakirkju. Genginn er stígur merktur Skógarkot 1.8.km frá Efrivöllum. Gangan tekur tæpan hálftíma.Guðmundur Vilhjálmsson organisti leiðir almennan söng og leikur á básúnu. Prestur er Kristján Valur Ingólfsson
Sjá nánar: http://kirkjan.is/thingvallakirkja 1. ágúst 2010 Guðsþjónusta í Bakkagerðiskirju Sunnudaginn 1. ágúst verður guðsþjónusta í Bakkagerðiskirkju.
Prestur sr. Jóhanna I Sigmarsdóttir og um létta tónlist sér Þorvaldur Halldórsson
Sjá nánar: http://kirkjan.is/mulaprofastsdaemi 1. ágúst 2010 Messa í Árneskirkju Sunnudaginn 1. ágúst kl. 16 verður messað í Árneskirkju á Ströndum.
1. ágúst 2010 Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2010 Steingrímur Þórhallsson, organisti Neskirkju, leikur á Klais-orgel kirkjunnar
Tónleikarnir hefjast kl. 17.00
Aðgangseyrir kr. 1.500
Sjá nánar: http://www.listvinafelag.is 1. ágúst 2010 Kvöldmessa í Valþjófsstaðarkirkju kl. 20:30 Kvöldmessa í Valþjófsstaðarkirkju sunnudaginn 1. ágúst kl. 20:30. Þorvaldur Halldórsson leiðir stundina í tali og tónum ásamt sóknarpresti, Láru G. Oddsdóttur.
Kaffi eftir messuna.
Allir velkomnir.
Sóknarprestur
1. ágúst 2010 Kvöldstund í Garðakirkju Helgistund í Garðakirkju kl. 20.00
M.a. beðið fyrir slysalausri verslunarmannahelgi og góðri heimkomu þeirra sem eru á faraldsfæti.
Rúta fer frá Vídalínskirkju kl. 19.30, frá Jónshúsi kl. 19.35 og frá Hleinum kl. 19.40 og til baka að lokinni athöfn.
Sr Friðrik J. Hjartar leiðir stundina. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Það er frábært að njóta kvöldkyrrðarinnar á Garðaholti.
Sjá nánar: http://gardasokn.is 1. ágúst 2010 Messa í Sæbólskirkju Sunnudaginn 1. ágúst kl. 20 er messa í Sæbólskirkju á Ingjaldssandi.
1. ágúst 2010 |