Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 29. janúar 2012

Síðasti sunnudagur eftir Þrettánda

Leiðbeiningar bænalífið

Guðþjónusta Landspítala í FossvogiVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3822

Guðsþjónusta Landspítalnum í Fossvogi kl. 10:30 á stigapalli á 4ju hæð. Prestur Gunnar Rúnar Matthíasson og organisti Helgi Bragason

29. janúar 2012

Biskup Halvor Nordhaug prédikar í messu í HallgrímskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3832

Á sunnudaginn 29. janúar, sem er síðasti sunnudagur eftir þrettánda, er messa og barnastarf í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Herra Halvor Nordhaug biskup í Bergen í Noregi prédikar og með honum þjónar séra Jón Dalbú Hróbjartsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

29. janúar 2012

FjölskylduguðsþjónustaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3831

Á sunnudag, 29. janúar, verður fjölskylduguðsþjónusta í Hjarðarholtskirkju kl. 11. Guðsþjónustan er í senn sunnudagsskóli og almenn guðsþjónusta. Boðið verður uppá djús og kex eftir guðsþjónustu í þjónustuhúsinu.

Sjá nánar: http://kirkjan.is/dalaprestakall/2012/01/fjolskyldugusjonusta/

29. janúar 2012

Fjölskylduguðsþjónusta í BrautarholtskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3823

Fjölskylduguðsþjónusta í Brautarholtskirkju kl. 11 á síðasta sunnudegi eftir þrettánda. Árni Svanur og Rannveig Iðunn þjóna. Páll Helgason organisti og gítarsveit Brautarholtskirkju leiða söng og tónlist. Allir krakkar og vinir þeirra velkomnir!

Sjá nánar: http://kjalarpr.is

29. janúar 2012

Fjölskylduguðsþjónusta og Tómasarmessa í Breiðholtskirkju.Veffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3826

Kirkjukrakkahátíð kl. 11. Sannkölluð fjölskyldustund. Prestur er sr.Bryndís Malla Elídóttir. Djáknar eru Þórey Dögg Jónsdóttir og Nína Björg Vilhelmsdóttir. Börn sýna helgileik og syngja. Börn sem verða 5 ára á árinu eru sérstaklega boðin velkomin.

Tómasarmessa kl. 20. Þema kvöldsins er "Hvílíkur maður er þetta ?"

Sr. Ólafur Jóhannsson prédikar. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina. Á eftir er kaffi í safnaðarheimilinu.

Sjá nánar: http://breidholtskirkja.is

29. janúar 2012

Guðsþjónusta í ÞykkvabæjarkirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3821

Guðsþjónusta í Þykkvabæjarkirkju kl. 11:00.

Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkna syngur, organisti er Árni Heiðar Karlsson.

Sjá nánar: http://kirkjan.is/oddaprestakall

29. janúar 2012

Sunnudagaskóli í ReykhólakirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3817

Sunnudagaskólinn á sínum stað í Reykhólakirkju.

Rebbi og Mýsla mæta á staðinn og Hafdís og Klemmi láta sig ekki vanta.

Syngjum, hlustum og biðjum :o)

Sjá nánar: http://kirkjan.is/reykholar

29. janúar 2012

ReykhólakirkjaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3819

Guðsþjónusta kl. 13:30 í Reykhólakirkju.

Viðar Guðmundsson leikur á orgelið og stjórnar kórnum.

Sjá nánar: http://kirkjan.is/reykholar

29. janúar 2012

BarmahlíðVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3820

Helgistund á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Barmahlíð kl. 14:30.

Organistinn og kórinn fylgja prestinum í þetta sinn.

Sjá nánar: http://kirkjan.is/reykholar

29. janúar 2012

Ensk messa í HallgrímskirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3833

Á sunnudaginn 29. janúar er ensk messa í Hallgrímskirkju kl. 14.00. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hörður Áskelsson. Forsöngvari er Halldóra Viðarsdóttir. Kaffi og meðlæti eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

29. janúar 2012

Guðsþjónusta og spurningakeppni á EiðumVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3824

Úrslitin í spurningakeppni fermingarbarna á Austurlandi veturinn 2011-2012 verða haldin sunnudaginn 29. janúar nk. kl. 14:00 á Eiðum. Keppnin hefst með fjölskylduguðsþjónustu í Eiðakirkju kl. 14 þar sem sr. Hólmgrímur E. Bragason predikar.

Eftir guðsþjónustuna verður haldið í Kirkjumiðstöðina við Eiðavatn þar sem boðið verður upp á léttar kaffiveitingar og sjálf spurningakeppnin fer fram þar. Gert er ráð fyrir að keppninni ljúki ekki seinna en kl. 17:00

Sjá nánar: http://kirkjan.is/austurland/2012/01/23/spurningakeppni-fermingarbarnanna/

29. janúar 2012

KolaportsmessaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3816

Helgistund í kaffistofu í Kolaportinu. Þorvaldur Halldórsson leikur og syngur frá kl. 13.30. Helgistund hefst kl. 14. Allir velkomnir.

29. janúar 2012