350 klukknaslögÞrettánda desember kl. 15 verður klukkum í ýmsum kirkjum landsins hringt til að minna á umhverfisvána vegna hlýnunar andrúmsloftsins. Í tilefni af loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn í desember verður kirkjuklukkum um allan heim hringt 350 sinnum til að minna á þá umhverfisvá sem steðjar að jarðarbúum vegna hlýnunar andrúmsloftsins. Hér á landi verður kirkjuklukkum hringt klukkan þrjú þennan dag víða um land. Hringingin á að tákna þrennt:
Af hverju 350 sinnum?Það er álit margra vísindamanna og loftslagsfræðinga að magn koltvíildis í andrúmsloftinu megi ekki fara yfir 350 hluta á móti milljón (350 prm). Ef magnið er komið upp fyrir það hlýnar andrúmsloftið með þeim afleiðingum að jöklar bráðna og heimshöfin hækka. Fyrir 200 árum var magn koltvíildis í andrúmsloftinu 275 hlutar af milljón en nú þegar er það komið upp í 387 hluta. Það merkir að minnka þarf losun koltvíildis úr andrúmsloftinu frá því sem nú er. Sunnudaginn 13. desember þegar loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna stendur sem hæst í Kaupmannahöfn verður klukkum Frúarkirkju hringt 350 sinnum við lok guðsþjónustu þar svo og í mörgum kirkjum í Danmörku. Reyndar hefst þessi táknræna athöfn á Fiji-eyjum í Kyrrahafi klukkan þrjú að staðartíma þar sem blásið verður í kuðunga sem eru hefðbundin hljóðfæri eyjaskeggja. Síðan berst hljóðið í vesturátt, klukkum hringt, blásið í lúðra, barðar bumbur eða slegið á allt eftir venju hvers lands um sig. Með þessari táknrænu athöfn vilja kristnar kirkjur um allan heim taka undir frumkvæði dönsku kirknanna og vara við umhverfisvánni en um leið minna á þá von sem felst í því að þjóðir heims grípi til nauðsynlegra athafna til að draga úr áhrifum manneskjunnar á náttúruna. Hægt er að sýna stuðning við klukknahringinguna á Facebook. Sjónvarp kirkjunnar |
![]() |
||||