Námskeið um bæninaÞriðjudaginn 9.febrúar kl. 18.00 verður haldið í Safnaðarheimili Breiðholtskirkju síðdegisnámskeið undir yfirskriftinni Bænin - farvegur blessunar í lífi og starfi. Námskeiðið hefst það kl. 18.00 og stendur til 21.00. Skráning fer fram með því að senda póst á netfangið kristin.arnardottir@kirkjan.is eða í síma 528 4000 Námskeiðið er í röð námskeiða sem haldin eru með reglulegu millibili á vegum Reykjavíkurprófastsdæma og Fræðslusviðs Biskupsstofu, Starfs- og leikmannaskólans undir heitinu Að starfa í kirkjunni. Þess má geta að í apríl verður síðan boðið upp á samskonar námskeið um Biblíuna. Umsjón með því námskeiði hefur séra María Ágústdóttir héraðsprestur.
Sjónvarp kirkjunnar |
![]() |
||||