Árangursríkt samstarf kirkna í BreiðholtiSamstarf kirknanna þriggja í Breiðholtinu, Breiðholtskirkju, Fella- og Hólakirkju og Seljakirkju hefur verið vaxandi síðustu misserin. S.l. vor var efnt til barnahátíðar á vegum kirknanna og var hún að þessu sinni haldin í Breiðholtskirkju. Mjög góð þátttaka var og hátíðin öll uppbyggileg, skemmtileg og bar vott um gróskumikið kirkjustarf á þessum vettvangi. Nú í sumarbyrjun var efnt til svokallaðra göngumessa í kirkjunum þremur. Er það í annað sinn sem helgihald með þessum hætti fer fram. Er þá gengið milli tveggja kirkna í hvert sinn. Starfsfólk þeirrar kirkju sem lagt er frá sér um kynningu á hverfinu sínu og lesnir eru ritningarstaðir á völdum áningastöðum. Gönguferðin um hverfið tekur um klukkustund. Prestar þeirrar kirkju sem gengið er til sjá um messuna í sinni kirkju. Á eftir býður sóknarnefnd upp á kaffi og meðlæti svo fólki gefst tækifæri að spjalla saman. Rúta ekur svo göngufólki til þeirrar kirkju sem gangan hófst til að þeir sem þurfa geti sótt bíla sína. Að þessu sinni hófust göngumessurnar með því að gengið var frá Fella- og Hólakirkju þann 30. maí og gengið til Breiðholtskirkju þar sem messað var. Sunnudaginn 6. júní var svo gengið frá Breiðholtskirkju að Seljakirkju og þar messað. Sunnudaginn 13. júní var gengið frá Seljakirkju og að Fella- og Hólakirkju og þar messað. Þátttakendur í göngunum hafa verið á bilinu 30-60 manns auk þess sem nokkrir hafa komið beint til kirkju en sleppt göngunni. Mikil ánægja hefur verið með þetta framtak og á göngunni og í samverunni í kirkju og safnaðarheimili myndast vinátta og kunningsskapur milli þátttakenda. Það er líka bæði ánægjulegt og fróðlegt að kynnast nágrannakirkjum sínum og starfsfólki og efla þannig samkennd safnaðanna. Mikill hugur er á að halda þessu samstarfi áfram og jafnvel auka það með frekari samvinnu. |
![]() |
||||