Messað í Þingvallakirkju á þjóðhátíðardegi

Þingvallakirkja og Þingvallabærinn

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní kl. 14 predikar biskup Íslands, Herra Karl Sigurbjörnsson við messu í Þingvallakirkju. Í tilefni af 150 ára afmæli Þingvallakirkju á síðasta ári hafa staðið yfir lagfæringar á kirkjunni og umhverfi hennar með tilstyrk Jöfnunarsjóðs Þjóðkirkjunnar, Kirkjugarðasjóðs og Þingvallanefndar.

Nú er merkum áfanga náð með því að stórlega hefur verið bætt aðgengi að kirkjunni með nýjum tröppum og hellulögn að þeim, undirstöðuhleðslur kirkjunnar hafa verið lagfærðar og endurgerðar að hluta og veggir og loft kirkjunnar hafa verið málaðir. Garðurinn meðfram kirkjugarðinum að austanverðu var hlaðinn upp og nýtt sáluhlið var reist, smíðað af kennurum og nemendum Iðnskóla Hafnarfjarðar.

Þessum tímamótum verður fagnað með biskupsmessunni á Þjóðhátíðardaginn þó enn sé ýmsum verkefnum ólokið. Að messu lokinni verður kirkjukaffi í Þingvallabænum í boði Þjóðgarðsvarðar.