Hvað varð um Melkorku?Sunnudaginn 1. ágúst næstkomandir verður dagskrá fyrir unga og aldna um konungsdótturina Melkorku sem numin var á brott frá Írlandi og flutt í Dali. Farið um söguslóðir á fjölskyldubílnum og saga hennar rakin og upplifuð. Upphaf dagskrár er í Leifsbúð í Búðardal klukkan 12:30 þar sem sagan er rifjuð upp með hjálp mynddiskins um hana, Melkorka, rætur íslenskrar menningar. Í Leifsbúð er hægt að fá keyptar veitingar. Eftir akstur um söguslóðirnar, með viðdvöl í Laxárósi, og Höskuldsstöðum er komið í Hjarðarholtskirkju þar sem dagskráin endar um kl 15 á helgistund með söngvum frá heimalandi Melkorku. Á eftir er hægt að setjast út í skógarlund með nestið sitt. Fyrir dagskránni stendur Hjarðarholtskirkja, séra Óskar Ingi Óskarsson og séra Jakob Ágúst Hjálmarsson, höfundur mynddisksins um Melkorku og er þátttaka ókeypis.
|
![]() |
||||