Fimm nýjar kirkjur teknar inn à LHÁ stjórnarfundi Lútherska heimssambandsins 18.-19. Júlí 2010 var samþykkt að veita fimm kirkjum aðild að samfélagi lútherskra kirkna innan LHS. Þessar kirkjur eru allar í Asíu, þrjár frá Myanmar, ein á Indlandi og ein í Nepal. Tvær lútherskar kirkjur í Myanmar innihelda annars vegar 1620 og hins vegar 2150 meðlimi sem dreifast um allt landið. Þær voru stofnaðar 1995 og 1998 og styðja báðar prestsvígslu kvenna. Þriðja kirkjan frá Myanmar starfar við Indversku landamærin og er þjóðkirkja Mara ættbálksins. Hún var stofnuð árið 1984 og hefur 21.573 meðlimi. Evangelíska kirkja góða hirðisins var stofnuð árið 2007 í Andra Pradesh í Suður Indlandi og hefur 15.400 meðlimi, aðallega Dalíta og ættbálka frumbyggja. Hún á 23 presta sem starfa í 42 sóknum og vígir konur til prestsþjónustu. Evangelísk-lútherska kirkjan í norður Nepal var stofnuð árið 1943 og hefur 676 meðlimi í 10 sóknum. Hún sinnir bæði trúboði og díakoníu og vígir konur til prestsþjónustu. Þessar kirkjur starfa allar á grundvelli samkirkjulegra og lútherskra játninga og deila sjálfsmynd lútherskra kirkna í boðun, þjónustu og samstarfi. Þær eiga rætur sínar í trúboði annarra lútherskra kirkna á svæðinu og eru farvegur fyrir þjóðlega og trúarlega sjálfmynd meðlimanna sem tilheyra bæði etnískum og trúarlegum minnihlutum í löndum sínum. Með nýju kirkjurnar innanborðs er Lh samtök 145 kirkna í 79 löndum, með alls rúmlega 70 milljónir meðlima. Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“. Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur. |
![]() |
||||