Verslunarmannahelgin um landiðUm Verslunarmannahelgina verður víða messað á fáfarnari stöðum auk hefðbundins helgihalds í kirkjum landsins. Upplýsingar um helgihald um verslunarmannahelgi er að finna í Dagbók kirkjunnar en hér er tæpt á nokkrum. Guðsþjónusta verður í bænhúsinu að Núpsstað í Skaftárhreppi sunnudaginn 1. ágúst nk. og hefst kl. 14:00. Hestamenn eru hvattir til að koma ríðandi til messu og verður farin hópreið frá Kálfafelli í Fljótshverfi kl. 12.30. Messað verður kl 14 í Ábæjarkirkju, sem er á eyðibýlinu Ábæ í Austurdal í Skagafirði. Þessi messa er árviss viðburður og hefur verið vel sótt. Á Austurlandi verður hinn góðkunni tónlistarmaður Þorvaldur Halldórsson á ferð í Múlaprófastsdæmi. Mun hann annast tónlistarflutning í léttum dúr við messur í þremur kirkjum á sunnudaginn og tala til safnaðanna á sinn einstaka og persónulega máta. Messurnar verða allar á sunnudag, í Egilsstaðakirkju kl. 11:00, í Bakkagerðiskirkju, Borgarfirði eystra, kl. 16:00, og í Valþjófsstaðarkirkju í Fljótsdal kl. 20:30. Á Vestfjörðum verður einnig messað á fámennari stöðum. Í Hólmavíkurprestakalli verður messað kl. 13 á sunnudag í Nauteyrarkirkju við innanvert Ísafjarðardjúp og kl. 16 í Árnesi á Ströndum. Kvöldmessa verður í Sæbólskirkju á Ingjaldssandi, Þingeyrarprestakalli, sama dag kl. 20. Þá verður messa í Brjánslækjarkirkju kl. 13 sunnudaginn 1. ágúst. Messað verður í Hóladómkirkju kl. 11 og tónleikar haldnir í sömu kirkju kl. 14. Að lokum má minna á Alþjóðlegt orgelsumar sem stendur yfir í Hallgrímskirkju. Vefur Kirkjukort sýnir staðsetningu allra kirkna á Íslandi, myndir af flestum og ýmsar upplýsingar um byggingu og sögu. |
![]() |
||||