Garðasókn

Messa í minningu dr. Róberts Abrahams Ottóssonar
Á Biblíudaginn, 12. febrúar kl. 11.00, verður messa og sunnudagaskóli í Vídalínskirkju. Í messunni verður hins mæta tónlistarmanns, dr. Róberts Abrahams Ottóssonar, minnst, einkum þó í tónlistinni, en hann hefði orðið 100 ára á þessu ári.

Dr. Róbert hafði talsverð áhrif á kirkjulífið í kennslu sinni í Guðfræðideild Háskólans auk áhrifa hans á sönglífið í landinu vegna þeirra menningarstrauma sem hann bar með sér bæði í söng og hljóðfæraleik.

Biblíudagsins verður einnig minnst.

Sunnudagaskólinn verður á sínum stað. Börnin fara með leiðtogum sínum í safnaðarheimilið eftir ritningarlestrana, en boðið verður upp á djús og molasopa í messulok eins og venja er.

Kór Vídalínskirkju syngur. Jóhann Baldvinsson er organisti, en prédikunin og þjónustan eru í höndum sr. Friðriks J. Hjartar.

Dyr kirkjunnar standa þér opnar nú og ævinlega!

Helgihaldið sunnudaginn 5. febrúar
Fjölskylduguðsþjónusta í Vídalínskirkju kl. 11:00

Sr.Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar ásamt fræðurum sunnudagaskólans.  Gleði og mikil tónlist. Barn borið til skírnar,  organisti er Jóhann Baldvinsson.

Guðsþjónusta í Garðakirkju kl. 14:00

Sr. Hans Guðberg Alfreðsson þjónar.  Kór Vídalínskirkju syngur, organisti Jóhann Baldvinsson.

Batamessa í Bessastaðakirkju kl. 17:00

Batamessan er tileinkuð fólki sem hefur unnið í tólf sporunum í kirkjunni en það eru sannarlega allir velkomnir til að eiga notalega og uppbyggilega stund í batamessu.

Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og

Gréta Konráðsdóttir djákni þjóna ásamt Vinum í bata. Organisti Jóhann Baldvinsson.

Villa í bæklingi yfir helgihald í Vídalínskirkju
Gospelguðsþjónusta sem á að vera í Vídalínskirkju í dag 29. janúar kl.17 er skráð kl.20 í bæklingnum yfir helgihald Garðasóknar sem borið var út fyrir helgi.  Við biðjum afsökunar á því og minnum á guðsþjónustuna kl.17 þar sem gospelkór Jóns Vídalíns syngur undir stjórn Ingvars Alfreðssonar.

Bíódagur í Opnu húsi þriðjudaginn 31. janúar
Á þriðjudögum fer fram öflugt og fjölbreytilegt safnaðarstarf.

Kyrrðarstund er í hádeginu og súpa á eftir, en mánaðarlega er bíósýning í Opna húsinu. Að þessu sinn verður sýnd  Óskarsverðlaunamyndin “The Kings’s Speech”. Mynd um sannsögulegt efni sem allir geta notið, enda vel gerð og vel leikin.

Kaffi í hléinu á kr. 300,- Sýningin hefst kl. 13.30. Akstur frá Hleinum og Jónshúsi.

Kl. 16.30 starfar Bænahringur kvenna

Kl. 17.30 er Jóga nidra - djúpslökun og fyrirbæn

KFUK er kl. 17.30 einnig og

Bænahópur karla kemur saman kl. 19.00

Æfingar Gospelkórs Jóns Vídalíns eru svo kl. 20.00

MÆTIÐ OG TAKIÐ ÞÁTT - ÞAÐ GÖFGAR MANNINN!

Messa og gospelguðþjónusta 29. janúar
Sunnudaginn 29. janúar verður hefðbundinn messa kl.11 og gospelguðsþjónusta kl.17

Í messu kl.11 mun Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predika og þjóna fyrir altari. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Barn borið til skírnar. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Erlu Bjarkar Káradóttur. Molasopi í safnaðarheimilinu á eftir.

Kl. 17 Gospelguðsþjónusta.  Gospelkór Jóns Vídalíns syngur undir stjórn Ingvars Alfreðssonar. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir altari. Helga Kolbeinsdóttir guðfræðinemi þjónar einnig í guðsþjónustunni en hún er nú í starfsþjálfun í Garðasókn.

Regla helgihaldsins: Vídalínskirkja 22. janúar kl. 11.00
Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 22. janúar kl. 11.00. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar fyrir altari.

Félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn. Organisti Jóhann Baldvinsson.

Leiðtogar sunnudagaskólans fræða og gleðja börnin og leiða þau í eldri og yngri hópum. Molasopi og djús eftir messu.

Kirkjan er samfélag sem tjáir gleði trúarinnar, en trúin vekur gleðina!

Allir velkomnir!

Kór Vídalínskirkju getur bætt við sig áhugasömu söngfólki
sérstaklega í bassa.

Nú er verið að æfa Gloria eftir Vivaldi og kórraddsetningar eftir dr. Róbert A. Ottósson, en á þessu ári eru 100 ár frá fæðingu hans. Tónleikar með einsöngvurum og hljómsveit verða um miðjan mars í samstarfi við Kór Víðistaðakirkju.

Þeir sem áhuga hafa á að synga með Kór Vídalínskirkju eru beðnir að hafa samband við Jóhann kórstjóra, annaðhvort í síma 899 9508 eða 565 6380 (Vídalínskirkja) eða senda tölvupóst á johannba@gardasokn.is.

Hvernig væri að drífa sig og fara að syngja með Kór Vídalínskirkju á nýju ári?

Messa og sunnudagaskóli í Vídalínskirkju sd. 15. janúar kl. 11.00
Helgihaldið er þegar komið í fastar skorður á nýju ári. Á sunnudaginn, 15. janúar kl. 11.00, eru messa og sunnudagaskóli. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar. Félagar úr Kór Vídalínskirkju leiða sönginn. Organisti Jóhann Baldvinsson.

Leiðtogar sunnudagaskólans starfa með börnunum í yngri og eldri deild.

Molasopi og djús eftir messu.

Birtan eykst og vonandi bjartsýni á lífið um leið - Verið öll velkomin!

Hugleiðing Vilhjálms Bjarnasonar í Vídalínskirkju á nýársdag
Hugvekja í Vídalínskirkju á nýársdag 2012

Ég vil hefja þessa hugvekju með kveðju með kveðju Páls postula í fyrra bréfi hans til Korintumanna

„Við heilsum einnig öllum þeim sem alls staðar ákalla nafn Drottins vors Jesú Krists sem er þeirra Drottinn og vor.

Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.

Ávallt þakka ég Guði mínum fyrir ykkur, hann hefur veitt ykkur náð sína í Kristi Jesú. Hann hefur auðgað ykkur á allan hátt svo að þið búið yfir allri mælsku og allri þekkingu. Vitnisburðurinn um Krist er líka staðfestur orðinn á meðal ykkar svo að ykkur brestur ekki neina náðargjöf meðan þið væntið opinberunar Drottins vors Jesú Krists.”

Ég vil einnig óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og velfarnaðar, hamingju og friðar á hinu nýja ári. Á tíma mótum sem þessum er rétt að staldra við, hugleiða það sem gerðist á árinu sem er að líða, hugleiða sigra, hverju fengum við áorkað af því sem góður hugur stefndi til, hvað sat á hakanum eða misheppnaðist. Við hugsum líka til þeirra vina og vandamanna sem gengnir eru. Blessuð verði minning þeirra.

Svo hugleiðum við hið ókomna, oftast hefjum við árið með aðstoð sr. Matthíasar:

Hvað boðar nýárs blessuð sól?

Hún boðar náttúrunnar jól,

hún flytur líf og líknarráð,

hún ljómar heit af Drottins náð.

Reyndar hóf ég daginn snemma með því að hlusta á 9. hljómkviðu Beethoven, sem endar með því að einsöngvarar, kór og hljómsveit, flytja „Óðinn til gleðinnar”. Þetta er árviss viðburður á nýársdagsmorgni og eflir með mér bjartsýni og von.

Þetta kvæði Schillers tjáir hugsjón um bræðralag mannkynsins - hugsjón sem Beethoven deildi með Schiller.

Óðurinn til gleðinnar

Fagra gleði, guða logi

Gimlisdóttir, heill sé þér.

Í þinn hásal, hrifnir eldi

heilög gyðja, komum vér.

Þínir blíðu, töfrar tengja

tískan meðan sundur slær.

Allir bræður aftur verða

yndisvængjum þínum nær.

Þegar flutningi Ríkisútvarpsins á 9. hljómkviðunni lauk í morgun, þá fannst mér ég fyrst geta horft glaður til nýs árs og nýs dags, enda er orðið bjart af degi.

Nú um stund hefur verið dauft í sveitum og hnípin þjóð er í vanda. Fáeinir einstaklingar hafa hagað sér eins og misindismenn, misgert við þjóðina og gert þegnana að bónbjargarmönnum. Það var eins og þeir hugsuðu í anda Þorgeirs í Gerplu:

„Eg em íslenskur maður… og fýsir mig lítt að fara aðsiðum annarra manna.”

Þolendur þessa mikla hildarleiks, sem efnahagshrunið er, máttu sín lítils þegar allt var talið leika í lyndi. Þeir töldu að grundvallarlögmál siðferðis væru virt í viðskiptum. Þegar hulunni var svipt af blekkingunni kom á daginn að ágirnd, hroki og þjónkun hafði valdið óbætanlegri ógæfu og tjóni, og við borð lá framtíð lands og þjóðar.

Líðan mín og margra annarra er vel lýst með orðum skáldsins:

“Að vakna við að maður hefur mist alt og veit að maður á ekki leingur neitt, er það þá að vera manneskja?”

Mér hefur sjaldan liðið eins illa í sjónvarpssal og þegar forsætisráðherra flutti sína frægu ræðu; Guð blessi Ísland. Hefur þó á ýmsu gengið í Útsvari!

Heyrið orðskviðirrnar 1. kafla, 17. vers:

í augsýn allra fleygra fugla,

slíkir menn sitja um eigið líf

og liggja í launsátri fyrir sjálfum sér.

Þannig fer öllum þeim sem fíknir eru í rangfenginn gróða:

fíknin verður þeim að falli.

Í því sorgarferli, sem þjóðin fer í gegnum, slegin tilfinningaleysi og doða, þarf að fara fram uppgjör, og í því uppgjöri þurfa þeir, sem sekir eru, að biðjast fyrirgefningar og skila því sem þeir hafa oftekið. Þá aðeins getur þjóðin tekið þá í sátt og horft fram á við, og þá er hafa misgert, er rétt að minna á orð skáldsins:

„að hefnist þeim er svíkur sína huldumey,

honum verður erfiður dauðinn.”

Það verður engin sáttargjörð með íslenskri þjóð sem vonar - þjóð sem er þrátt fyrir allt friðelskandi - fyrr en þeir sem hafa misgert, hafa gert hreint fyrir sínum dyrum,

sýnt auðmýkt og beðist fyrirgefningar. Hér átti sér stað siðrof. Viðteknum og eðlilegum gildum var hafnað.

Í þrjú ár hefur þjóðin verið í hlutverkum Valdimir og Estragon; við höfum beðið eftir Godot. Eftir hverju er þjóðin að bíða?

Enn vitna ég í orð skáldsins:

“og þetta er hamingjan sjálf: að bíða í eftirvæntingu komandi dags.”

Hver er Godot?

Hvað vill Godot?

Hverju erum við bættari þegar Godot kemur?

Kemur Godot með sannleika og ást til að auka bræðralag mannanna? Bræðralagi þeirra Schillers og Beethoven!

Hvað ætla Vladimir og Estragon að gera þegar Godot kemur?

Ætla þeir ef til vill að halda áfram að gera ekki neitt?

Er Godot ef til vill hundur, sem liggur á nagla og vælir ámátlega, þar sem enginn kann á krana til að lyfta hundinum af naglanum.

Á árum svokallaðarar útrásar var sýndarmennskan það sem stóð upp úr. En maðurinn þarf að vera og gera, ekki aðeins að sýnast, hvers kyns sýndarmennska er eitur í beinum hugsandi fólks.

Hugsjónamenn leggja ekki frá sér vopnin þegar þeim er kald á fingrum á meðan hjartað er heitt. Til að komast út úr þeirri kyrrstöðu sem við erum nú í þarf hugkvæmni og fræ, neista sem verður að báli. Það þarf siðvæðingu, hefja gömul gildi til virðingar.

Þorsteinn skáld frá Hamri yrkir í ljóði sínu Fræ:

Vera manns-

öll er hún sveipuð svip

einhvers í vændum einhvers sem ekki kom:

ár og dagur

staðir og stund, allt

hvílir í mynd

þess, hans eða hennar…

er það blærinn frá biðinni sem leikur af ákafa, áfram

um hús mannsins og höfuð

og vermir í dag

þetta vorsána fræ?

Á því ári sem nú er hafið þurfum við að horfa fram á við, við þurfum að taksat á við þau vandamál sem eru brýnust í þessu samfélagi. Fátækt og misskipting hefur aldrei verið liðin meðal okkar. Fátækt og misskipting á sér rætur í atvinnuleysi. Í fyrsta skipta frá því ég man eftir mér hefur atvinnuleysi verið notað sem hagstjórnartæki, Ísland verður aldrei sjálfbært með 10% atvinnuleysi.

Ég hef á liðnum árum leitt hugan að íslenskri auðhyggju. Auðhyggja, kapítalismi, er mjög merkilegt hugtak, siðfræðileg undirstaða þess á sér rætur í guðfræði mót-mælendakirkjunnar, nánar tiltekið í kenningunni um köllun mannsins til að þjóna guði með vinnu sinni.

Peningar er ekki bannorð í Biblíunni eins og sumir virðast halda.  Þeir geta verið leið til að ávaxta vinnuframlag og auðga þannig velferð heildarinnar.

Auðhyggju er oft ruglað saman við græðgi og nauðung. Auðhyggja Kalvins byggir á iðjusemi og sparsemi hins hugsandi manns. Auðhyggja er nægjusemi.

Birtingarmynd auðhyggjunnar á Íslandi verður best lýst í skipstjórum og útgerðarmönnum víða um land, sem gátu ekki hugsað verklausa vinnufæra hönd vegna atvinnuleysis.

Auðhyggjan er líka í innviðum þessa samfélags, þar sem forystumenn virkjuðu fallvötn og jarðvarma, lögðu vegi og byggðu sjúkrahús til að bæta mannlíf. Það þarf að virkja gömul gildi íslenskrar auðhyggju til að draga úr atvinnuleysi, sem má aldrei verða eitthvað, sem þjóðin sættir sig við.

Ef til vill kemur Guð til okkar eftir óræðum leiðum. Vinur minn ágætur fæst við lækningar á bæklun sálinnar. Eitt sinn fékk hann til sín sjúkling, mann á miðjum aldri. Mein og depurð mannsins átti sér ýmsar orsakir:

Konan, sem hann hélt að elskaði sig, hélt fram hjá honum.

Synir hans, sem eitt sinn voru efnilegir námsmenn, voru dópistar og útgangs­menn.

Dætur mannsins, sem eitt sinn voru fræknar íþróttakonur, voru fluttar til annars lands og stunduðu þar vændi.

Mamma mannsins fyrleit hann því bræður hans áttu góðar konur.

Eins og þið heyrið þá er þetta til samans mikill harmur.

Eftir langt samtal við geðlækninn kasta þeir, geðlæknir og sjúklingur, kveðju sín á milli.

Kveðja geðlæknisins var:

„Guð veri með þér”.

Við þetta firrtist sjúklingurinn kippti að sér hendinn i og sagði:

„Hvers konar ofstopi er þetta, að ræða við mig um Guð í sjúkraviðtali?”

Skildu þeir síðan í fáleikum.

Næst gerðist það í samskiptum þeirra, sjúklings og geðlæknis, að geðlæknirinn fékk bréf frá sjúklingnum, bréfið var afrit af kæru til landlæknis með aukafritum til vel­ferðarráðherra og Umboðsmanns Alþingis vegna þessa meinta ofstopa geð­læknisins; að ræða við sjúklinginn um Guð.

Í bréfinu kom ekkert fram um harm sjúklingsins eða önnur sálarmein, sem að framan var lýst. Sjúklingurinn var því albata af harminum. Af þessari litlu sögu má sjá að vegir Guðs eru órannsakanlegir.

Til að auka okkur gleði óska ég þess að við getum sungið með okkar mildu hjörtum pólskt jólalag á næstu jólum:

Heyrið, allir!

Guð er meðal okkar,

erfiðir tímar eru að baki

Hann gefur sjálfan sig,

himneska dýrð

Og frið til góðra manna.

Með þessum orðum lýk ég máli mínu.

Heimsókn eldri borgara úr Hafnarfirði
Árleg samvera eldri borgara úr Víðistaðaprestakalli og Garðaprestakalli hefst með messu í Vídalínskirkju  sunnudaginn 8. janúar kl. 14.00. Sr. Bragi J. Ingibergsson prédikar og þjónar fyrir altari, en Kórfélagar úr Víðistaðasókn annast sönginn. Kaffi í boði Garðasóknar að messu lokinni.