




Öllum kirkjukórum og öllu tónlistarfólki innan kirkjunnar er boðið að taka þátt í dagskrá Kirkjudaga með tónlistardagskrá. Á Kirkjudögum er bæði tækifæri til að kynna nýtt, s.s. sálma, sönglög og annað, en jafnframt flytja gamalt og gott. Einnig að hitta tónlistar- og söngfólk af öllu landinu til að skiptast á hugmyndum og skoðunum. Boðið er upp á gistingu fyrir hópa sem koma utan að landi í Austurbæjarskóla.
- í opnunarhátíð – sérstök tónlistaratriði
- á föstudagskvöldinu í kórakaffi
- á laugardeginum milli kl. 12:00-17:45
a) á sviði á 3ju hæð Iðnskólans (málstofugangi) (10 mín.)
b) á sviði við Hallgrímskirkju (útisvæði) (30-45 mín.)
c) inn í Hallgrímskirkju (30-45 mín.)
d) á sviði á svæði fyrir kynningarbása í Iðnskóla (10 mín.)
e) kórakaffi
f) í kaffihúsi Listvinafélags Hallgrímskirkju (suðursalur Hallgrímskirkju)
- útimessa kl. 18:00 á laugardeginum (samkór) - opin þátttaka
- á laugardagskvöldinu kl. 19:30-22:00 (30 mín.)
- á kvöldvöku á laugardagskvöldini - sérstök tónlistaratriði
Kórar sem taka þátt í dagskrá Kirkudaga geta fengið tíma til að æfa sig. Óskir þess efnis berist á kirkjudagar@biskup.is. Æfing samkórs fyrir útimessu verður milli kl. 16:00-18:00 á föstudeginum í Hallgrímskirkju.