Þjóðkirkjan - myndhluti úr steindum glugga Leifs Breiðfjörð á vesturgafli Hallgrímskirkju ForsíðaBiskupsstofaKirkjustarf Smelltu hér til að fara á forsíðu kirkjan.is
Kirkjustarf
Jólaefni
Helgihald
Prédikun og boðun
Sálgæsla
Barnastarf
Fermingarstarf
Unglingastarf
Safnaðarstarf
Starf með öldruðum
Leikmannastefna

Fyrirspurnir
Símanúmer og netföng
Póstlisti
Yfirlit yfir vefi kirkjunnar
Um vefinn

Fjölskylduþjónustan
Hjálparstarf kirkjunnar
Leikmannaskólinn
Prestssetrasjóður
Skálholt
Skálholtsútgáfan
Tónskóli Þjóðkirkjunnar

Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 535 1500, fax 551 3284
kirkjan@kirkjan.is

Prentvæn útgáfa

Þýð. sr. Maríu Ágústsdóttur

Boðorðin 10

Boðorðin með hliðsjón af útskýringum Lúthers

Mundu: Eitt boðorð í huga er betra en tíu í bók!

(mynd af þríhyrningi – textinn settur upp utanum)

Fyrsta boðorð

Ég er Drottinn Guð þinn. Þú skalt ekki aðra guði hafa

Hvað er það? Svar: Við eigum umfram allt að óttast og elska Guð og treysta Guði.

Annað boðorð

Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma

Hvað er það? Svar: Við eigum að óttast og elska Guð, svo að við biðjum ekki óbæna í nafni Guðs, sverjum, fremjum fjölkynngi, ljúgum né svíkjum, heldur áköllum það í allri þörf, biðjum, lofum og þökkum.

Þriðja boðorð

Halda skaltu hvíldardaginn heilagan

Hvað er það? Svar: Við eigum að óttast og elska Guð, svo að við fyrirlítum ekki predikunina né orð Guðs, heldur höldum það heilagt, heyrum það gjarnan og lærum.

(litlir kassa við hlið hvers boðorðs 4-10)

Fjórða boðorð

Heiðra skaltu föður þinn og móður

Hvað er það? Svar: Við eigum að óttast og elska Guð, svo að fyrirlítum ekki móður okkar, föður (eða annað fólk sem segir okkur til) né reitum þau til reiði, heldur höfum þau í heiðri, þjónum þeim og hlýðum, elskum þau og virðum.

Fimmta boðorð

Þú skalt ekki mann deyða.

Hvað er það? Svar: Við eigum að óttast og elska Guð, svo að við meiðum ekki náunga okkar né vinnum þeim nokkurt mein á líkama þeirra, heldur björgum þeim og hjálpum í allri neyð.

Sjötta boðorð

Þú skalt ekki drýja hór.

Hvað er það? Svar: Við eigum að óttast og elska Guð, svo að við lifum hreinlega og siðlega í orðum og verkum og sérhver hjón elski og virði hvort annað.

Sjöunda boðroð

Þú skalt ekki stela.

Hvað er það? Svar: Við eigum að óttast og elska Guð, svo að við tökum ekki peninga eða fjármuni náunga okkar né drögum okkur það með svikinni vöru eða öðrum brögðum, heldur hjálpum þeim að varðveita eigur sínar og efla atvinnu sína.

Áttunda boðorð

Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.

Hvað er það? Svar: Við eigum að óttast og elska Guð, svo að við ljúgum ekki ranglega á náunga okkar, svíkum, baktölum né ófrægjum, heldur afsökum annað fólk, tölum vel um það og færum allt til betri vegar.

Níunda boðorð

Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns.

Hvað er það? Svar: Við eigum að óttast og elska Guð, svo að við sækjumst ekki eftir arfi eða húsi náunga okkar með brögðum, heldur styðjum náunga okkar og styrkjum í að halda því.

Tíunda boðorð

Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þjón, þernu, fénað né nokkuð það sem náungi þinn á.

Hvað er það? Svar: Við eigum að óttast og elska Guð, svo að við drögum ekki, kúgum né tælum heimilisfólk frá náunga okkar, heldur uppörvum þau til að sýna trúmennsku.

Verkefni

Fundur í “Öldungaráðinu”

Bjóddu hópnum á fund. Nú eru þau “öldungar” sem eiga að ráða fram úr vandamáli.

  1. Veljið atvik eða málefni sem skiptir ungmennin máli. Það getur verið hvaðeina sem á sér stað í lífi þeirra, skilnaður, einelti, þjófnaður, rifrildi við foreldra, svindl, baktal o.s.frv. Einnig má taka upp mál, sem valdið hefur misklíð á námskeiðinu.
  2. Hópurinn ræðir málið, hvers vegna það gerðist og hvað við erum að gera til að takast á við það.
  3. Hópurinn ræðir hvað kristin trú hefur að segja um þetta mál. Flettið upp í Biblíunni, skoðið boðorðin 10 og tvöfalda kærleiksboðorðið o.s.frv.
  4. Skrifið niður nokkra möguleika til úrbóta.
  5. Veljið bestu leiðina.

Ef málið varðar hópinn beint er best að láta úrlausnina koma til framkvæmda strax ef hægt er.

Jákvæðu boðorðin

Ræddu með hópnum hvernig boðorðin myndu líta út ef þau væru með jákvæðum formerkjum. Skiptu í litla hópa, 2-3, og biddu þau að skrifa niður boðorðin á sinn hátt, án þess að nota orðið “ekki”.

Merking í þröngu og víðu samhengi

Skiptu í tvo hópa (eða fjóra eftir stærð, ekki fleiri en 10 í hóp). Báðir hópar velja sér ritara, sem tekur niður stikkorð og kynnir niðurstöður í lokin.

Annar hópurinn ræðir hvaða merkingu hvert boðorð hefur fyrir þau sem einstaklinga og fjölskyldu þeirra. Hinn hópurinn ræðir merkingu boðorðanna fyrir þjóðfélag og stjórnvöld.



© Fræðslusvið Biskupsstofu 2001

Ábendingar er varða efnið sendist til unglingastarf@biskup.is