Nýr vefur Kirkjuþings er á www.kirkjuthing.is
Tillaga að starfsreglum um kirkjutónlist á vegum þjóðkirkjunnar
14. mál
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Hreinn Hjartarson
1. gr. Á vegum þjóðkirkjunnar skal staðið að kirkjutónlistarmálum á grundvelli stefnu þjóðkirkjunnar sem Kirkjuþing samþykkir. Meginviðfangsefni hennar eru söngur og tónlistarflutningur við helgiathafnir kirkjunnar, fræðsla um kirkjutónlist og menntun starfsmanna á því sviði.
2. gr. Biskup ábyrgist framkvæmd kirkjutónlistarstefnu í samræmi við önnur ákvæði starfsreglna þessara og setur nánari fyrirmæli um útfærslu hennar.
3. gr. Framkvæmd kirkjutónlistarstefnu skal einkum felast í því að
a) veita prestum, organistum, kirkjukórum og öðrum sem að kirkjulegu starfi koma, stuðning, aðstoð og ráðgjöf
b) halda uppi kennslu í kirkjutónlist og líturgískum fræðum
c) mennta organista til starfa.
4. gr. Starfrækja skal Tónskóla þjóðkirkjunnar sem annast um menntun organista og kirkjutónlistarfræðslu, sbr. b og c lið 3. gr. Skólinn starfar eftir námsskrá sem Kirkjuráð samþykkir.
Meginverkefni skólans er að sjá til þess að ávallt sé nægur fjöldi organista og annarra starfsmanna á sviði kirkjutónlistar er hafi viðhlítandi menntun og færni til að sinna málefninu.
5. gr. Tónskólinn heyrir undir kirkjuráð. Kirkjuráð getur samið við kirkjulega aðila, ríki, sveitarfélög eða aðra um þjónustu er skólanum er ætlað að veita skv. 2. gr.
6. gr. Með yfirstjórn skólans fer þriggja manna stjórn, skipuð af Kirkjuráði til fjögurra ára, frá og með 1. júlí, árið eftir kjör til Kirkjuráðs. Kirkjuráð skipar þrjá varamenn frá sama tíma. Kirkjuráð velur formann og varaformann.
Stjórnin ber ábyrgð á að skólinn sinni skyldum sínum og haldi sig innan fjárheimilda hverju sinni.
7. gr. Stjórnin gerir árlega starfs - og rekstraráætlun og leggur fyrir Kirkjuráð til samþykktar fyrir lok septembermánaðar. Starfs - og rekstrarár skólans er almanaksárið. Stjórn og skólastjóri skulu á hverju reikningsári semja ársreikning. Jafnframt skal samin skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. Stjórn og skólastjóri skulu undirrita ársreikninginn. Endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fyrir Kirkjuráð.
8. gr. Stjórnin, í samráði við Kirkjuráð, ræður skólastjóra og setur honum erindisbréf. Skólastjóri annast daglega yfirstjórn skólans og ræður annað starfsfólk hans í samráði við stjórn. Heimilt er að semja við annan aðila um rekstrarþjónustu við skólann svo sem um fjárhald og bókhald, rekstur húsnæðis, skrifstofu og upplýsingakerfis, annan almennan skrifstofurekstur og aðra sambærilega þætti.
9. gr. Færa skal til bókar meginatriði þess sem fram fer á fundum stjórnar og ákvarðanir hennar. Fundargerðir skulu sendar Kirkjuráði reglulega.
10. gr. Tónskólanum er heimilt að afla sértekna samkvæmt gjaldskrá er staðfest skal af Kirkjuráði.
11. gr. Starfsreglur þessar sem settar eru með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi 1. janúar árið 2003. Frá sama tíma falla brott starfsreglur um söngmál og tónlistarfræðslu á vegum Þjóðkirkjunnar nr. 825/2000.
Ákvæði til bráðabirgða. Umboð núverandi stjórnar Tónskólans gildir til loka maímánaðar 2003.
Greinargerð
Í ákvæði til bráðabirgða í starfsreglum um söngmál og tónlistarfræðslu á vegum Þjóðkirkjunnar nr. 825/2000 er kveðið svo á að þær skuli endurskoða innan tveggja ára.
Tillögur þessar að starfsreglum um kirkjutónlist á vegum Þjóðkirkjunnar eru unnar á grundvelli stefnu stjórnar Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Stjórnin markaði skólanum stefnu og gaf út í febrúarmánuði 2002. Stefnan var kynnt á fundi Kirkjuráðs þann 8. maí og var samþykkt á fundi ráðsins þann 5. júní sl. í meginatriðum. Stefnan fylgir með tillögu þessari og þykir mega vísa til hennar um grundvallaratriði máls þessa. Ekki er um neinar stórvægilegar breytingar að ræða á efni gildandi starfsreglna. Að athuguðu máli þótti þó aðgengilegra og skýrara að setja alveg nýjan bálk starfsreglna í stað þess að breyta þeim sem fyrir er. Helstu nýmæli tillagnanna frá gildandi reglum er sem hér segir:
Verkaskipti og ábyrgð kirkjulegra stjórnvalda á sviði söng - og tónlistar eru skýrð nánar frá því sem nú er
Gert er ráð fyrir að Kirkjuþing marki tónlistarstefnu Þjóðkirkjunnar og biskup annist um framkvæmd hennar
Fallið er frá því að óska eftir tilnefningum við skipun stjórnar
Leitast er við að gera starfsreglurnar skýrari og aðgengilegri með nokkuð breyttri framsetningu þótt efnisinnihald þeirra sé áþekkt núgildandi starfsreglum.
Um einstök ákvæði tillagnanna.
Um 1. gr.
Að mati stjórnar Tónskólans og Kirkjuráðs er æskilegt að þær breytingar á starfsreglum sem hér eru lagðar til nái fram að ganga hið fyrsta enda skylt að endurskoða reglurnar samkvæmt ákvæðum þeirra. Þær eiga heldur ekki að hamla stefnumótunarvinnu í framtíðinni enda tiltölulega einfaldar og almennar meginreglur. Gert er ráð fyrir að Kirkjuþing samþykki stefnu Þjóðkirkjunnar í tónlistarmálum. Má velta því fyrir sér hvort eðlilegt sé að stefnumörkunin fari fram í tengslum við setningu starfsreglnanna þannig að hvort tveggja fylgist að í stað þess að byrja á setningu starfsreglna. Í raun má segja að viss grunnstefnumótun eigi sér stað við setningu þeirra og Kirkjuþing hefur alltaf á valdi sínu að breyta starfsreglum. Það þykir fremur auðvelda væntanlega stefnumótunarvinnu að skilgreina verkaskipti strax eins og tillögurnar miða að þannig að réttir aðilar komi að því máli. Þá skal bent á að Kirkjuráð leggur fram til kynningar með skýrslu sinni frumdrög að stefnu Þjóðkirkjunnar í tónlistarmálum sem gefur vísbendingar um hvað verður að finna í tillögunum. Enn fremur er minnt á tillögu um stefnumótun Þjóðkirkjunnar sem er til umfjöllunar á þessu Kirkjuþingi. Stefnt er að því að leggja fram tillögu að tónlistarstefnu Þjóðkirkjunnar á næsta Kirkjuþingi.
Um 2. gr. Kirkjutónlist er hluti af helgihaldi kirkjunnar og veigamikill þáttur í fræðslustarfi hennar sömuleiðis. Þau verkefni eru hluti af biskupsþjónustunni og þykir eðlilegt að skilgreina það í starfsreglum um málaflokkinn. Hér er fyrst og fremst átt við innihald málaflokksins og framkvæmd en eins og fyrr segir markar Kirkjuþing stefnuna og rammann með setningu starfsreglna og stefnumótun. Þá er mælt fyrir um fjárhagshlið málsins í lögum um Kirkjumálasjóð nr. 138/1993 og Tónskólinn heyrir undir Kirkjuráð. Gengið er út frá því að söngmálastjórn (söngmálastjóri) Þjóðkirkjunnar tilheyri biskupsþjónustunni enda er það eðlilegt og í samræmi við hugmyndafræði þá sem býr að baki tillögum þessum að starfsreglum.
Um 3. gr. Ákvæðið á sér hliðstæðu í 2. gr. núgildandi starfsreglna og þykir ekki ástæða til að breyta efni þess ákvæðis en leitast er við að setja það fram á skýrari hátt.
Ákvæðið er í samræmi við 1. gr. tillagna þessara og felur í sér nánari útfærslu þess.
Um 4. gr. Ákvæðið er svipað núgildandi starfsreglum en þó er hlutverk skólans einskorðað við að halda uppi kennslu í kirkjutónlist og líturgískum fræðum annars vegar og að mennta organista til starfa hins vegar. Nýmæli er að skólinn skal starfa eftir námsskrá sem Kirkjuráð samþykkir. Lagt er til að meginverkefni skólans verði skilgreint þannig að honum beri að sjá til þess að ávallt sé nægur fjöldi organista og annarra starfsmanna á sviði kirkjutónlistar er hafi viðhlítandi menntun og færni til að sinna málefninu. Þetta er leiðbeinandi meginregla þar sem Kirkjuþing setur skólanum meginmarkmið, verði tillögur þessar samþykktar af þinginu.
Um 5. gr. Ákvæðið á sér beina samsvörun í 4. gr. og niðurlagi 3. gr. núgildandi starfsreglna. Það opnar möguleika á margvíslegu samstarfi þessara aðila þyki það hagfellt. Stjórn Tónskólans hefur m.a. rætt við Listaháskóla Íslands um gagnkvæmt samstarf.
Um 6. gr. - 10. gr. Ákvæðin eiga sér beina samsvörun í núgildandi starfsreglum auk sambærilegra starfsreglna um Fjölskylduþjónustu kirkjunnar og Leikmannaskólann. Þó er lagt til að ekki sé skyldubundið að söngmálastjóri sé jafnframt skólastjóri heldur sé það falið biskupi og stjórn Tónskólans að ákveða það. Með því er gefinn kostur á að skipa málum hverju sinni eins og best þykir henta. Áréttað er að biskup ber ábyrgð á framkvæmd tónlistarstefnu, m.a. skv. a lið 3. gr. starfsreglna þessara.
Um ákvæði til bráðabirgða. Lagt er til að umboð núverandi stjórnar sé óbreytt eins og mælt er fyrir um í núgildandi starfsreglum. Þykir vissara að setja ákvæði um þetta til að taka af allan vafa.