![]() |
![]() |
![]() | |
![]() | |||
![]()
Biskupsstofa
Kirkjuþing í Grensáskirkju
|
![]() |
![]() Tillaga að þingsályktun um kærleiksþjónustu Þjóðkirkjunnar við leik- og grunnskólabörn.6. málFlutt af: Sigríði M. Jóhannsdóttur og Birgi ThomsenKirkjuþing 2003 beinir því til Kirkjuráðs að það beiti sér fyrir því að skipuð verði samstarfsnefnd kirkju og skólayfirvalda til að móta stefnu í kærleiksþjónustu kirkjunnar við leik- og grunnskólabörn. GreinargerðTillaga þessi er lögð fram til að koma til móts við væntingar um aukna kærleiksþjónustu í leik- og grunnskólum, sem fram koma í svörum þeirra er þátt tóku í stefnumótunarvinnu þjóðkirkjunnar á yfirstandandi ári. Hún er jafnframt byggð á góðri reynslu af samstarfsverkefni skólayfirvalda í Mosfellsbæ og Lágafellssóknar undir heitinu „Vinaleið“, samanber meðfylgjandi fylgiskjöl frá skólastjórum grunnskóla Mosfellsbæjar, ásamt kynningu á samstarfsverkefni, eftir Þórdísi Ásgeirsdóttur. |
|
![]() |
|||||||||||||||||||