Hluti af starfi mínu sem djákni í Lágafellssókn felst í kærleiksþjónustu við grunnskólana í Mosfellsbæ. Þetta er ný þjónusta sem ég kalla Vinaleið. VINALEIÐ er kristileg sálgæsluþjónusta og stuðningur við nemendur, kennara og foreldra. Nafnið VINALEIÐ vísar til þess að: ³ Vinur elskar ætíð og í nauðum er hann sem bróðir.² Orðskviðirnir 17.17.
Vinaleið byrjaði í febrúar 1999 þegar þáverandi skólastjóri Varmárskóla, Birgir D. Sveinsson, bað mig um að taka viðtöl við nemanda sem átti mjög erfitt.
Þetta starf skilaði árangri og skólastjórnendur, kennarar, annað starfsfólk skólans svo og foreldrar voru ánægðir með þessa nýju þjónustu við nemendur svo að skólastjórinn óskaði eftir því við fræðsluyfirvöld að Vinaleið yrði fastur liður í starfi skólans. Veturinn 1999-2000 varð þessi þjónusta að fastri 50% stöðu innan skólans og hefur verið síðan.
Vinaleið er fyrirbyggjandi starf og er hluti af stoðkerfi skólanna. Hún er opin og almenn. Þá er átt við að það þarf ekki leyfi foreldra til að nemandi komi í sálgæsluviðtal og allir nemendur skólans geta nýtt sér þessa þjónustu að vild. Eins og áður sagði felst starf Vinaleiðar í sálgæsluviðtölum við nemendur og stuðningi kennara og foreldra. Með sálgæsluviðtölum er leitast við að styrkja gera heilt, leiðbeina og sætta. Hún er tímabundin samfylgd þar sem sálgætirinn veitir virka nærveru. Markmið sálgæslu er að eiga samfylgd sem öðrum einstaklingi, rjúfa einangrun sem erfiðleikar og þjáningar valda. Vanlíðan og kvíði verða til af margskonar orsökum svo sem vegna stríðni, eineltis, höfnunar, missis eða veikinda hjá barninu eða fjölskyldu þess. Í sálgæslu mætir sálgætirinn einstaklingnum þar sem hann er staddur og styður hann til þess að finna styrk sinn og von. Vinaleið er ekki meðferðaraðili. Góð samvinna er á milli djákna og annarra fagaðila skólanna kennara, sálfræðinga, námsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga, skólastjórnenda og annarra starfsmanna skólanna.
Í byrjun skólaárs kynni ég þjónustu Vinaleiðar í öllum bekkjum Varmárskóla og Lágafellsskóla. Í hverri kennslustofu, bókasafni og sérkennslustofum er auglýsingarmiði VINALEIÐAR á vegg til þess að minna nemendur og kennara á þjónustuna þegar hennar er þörf.
Í starfi Vinaleiðar legg ég mikla áherslu á að vera vinur nemendanna og vinna traust þeirra. Ég er til staðar fyrir þá, ég hlusta á þá, hjálpa þeim og veiti þeim stuðning.
Boðleiðir Vinaleiðar eru þrjár:
1) nemandi óskar eftir þjónustu Vinaleiðar og talar beint við mig eða biður kennara sinn að sækja um viðtal
2) kennari sækir um þjónustu Vinaleiðar fyrir nemanda sinn á þar til gerðum eyðublöðum
3) foreldri biður um sálgæslu fyrir barn sitt. Ég sæki nemanda inn í bekk og síðan fer viðtalið fram á skrifstofum Vinaleiðar.
Hvert viðtal eru 40 mínútur eða ein kennslustund. Fjöldi viðtala fer eftir þörfum hvers og eins. Ég held spjaldskrá yfir nemendur en þar eru aðeins nauðsynlegustu upplýsingar svo sem nöfn á foreldrum, systkinum og því um líkt. Þagnarskylda er algjör gagnvart nemenda.
Á skrifstofum VINALEIÐAR í skólunum er heimilislegt og notalegt. Á veggjum eru veggspjöld og myndir frá barnastarfi kirkjunnar. Faðir vor er í ramma á vegg svo og bænir sem nemendur hafa skrifað upp og skreytt. Þetta eru uppáhaldsbænir þeirra sem eru beðnar með þeim á kvöldin áður en lagst er til svefns. Auglýsingamiðar um fundartíma barnastarfs kirkjunnar þeir liggja á borði ásamt bókum, límmiðum og öðru fræðsluefni kirkjunnar. Hefti um réttindi barna samkvæmt Barnasáttmála sameinuðuþjóðanna sem Ísland er aðili að liggur frammi. Allt sem er jákvætt, fagurt og fullkomið er í miðpunkti og undirstrikað.
VINALEIÐ er vinsæl hjá nemendum svo er Guði fyrir að þakka. Oft er ég spurð á göngum skólans: Hvað er gert í VINALEIÐ um hvað talið þið? Svarið er: Við tölum um allt milli himins og jarðar.
Hver og einn maður er sérstakur og upplifir og reynir á sinn hátt. Djákni er rödd nemenda útávið. Þannig kem ég boðum og hugmyndum frá nemenda til skila til réttra aðila sé þess óskað. Þegar ég sæki nemanda í viðtal rétta gjarnan fleiri nemendur upp hönd til merkis um að þeir vilji koma og reyna þessa þjónustu. Þótt það sé e.t.v. af einskærri forvitni og jafnvel ósk um að sleppa úr tíma þá eru allir velkomnir í VINALEIÐ hverjar svo sem forsendurnar eru þá er hægt að tala um þær. En eins og við vitum kemur sannleikurinn alltaf í ljós um síðir.
VINALEIÐ er stuðningur við kennara. Kennarar leita eftir stuðningi djákna við að finna lausn á ýmsum málum svo sem að sætta ágreining í bekkjum bæði milli einstaklinga og hópa, hjálpa nýjum nemanda að aðlagast bekkjarsystkinum og eignast vini svo eitthvað sé nefnt. Kennarar benda foreldrum gjarnan á VINALEIÐ sem leið til úrlausnar. Kennarar í Varmárskóla og Lágafellsskóla eru ánægðir með
þjónustu VINALEIÐAR og telja hana mikilvæga þjónustu í skólasamfélaginu. VINALEIÐ er einnig stuðningur við foreldra. Þeir leita eftir stuðningi djákna við ýmis mál sem snýr að barninu, fjölskyldunni, heimilinu eða skólanum. Foreldrar eru ánægðir með þessa þjónustu og hlaut VINALEIÐ viðurkenningu Foreldrafélags Varmárskóla og Vesturseturs ( nú Lágafellsskóla) á vorhátíð félagsins 20. maí 2001.
Skólaárið 2001-2002 komu 138 nemendur í 255 viðtöl. 46% nemanda óskaði eftir viðtali, 35% kennarar báðu um viðtal fyrir nemendur og 19% foreldra báðu um viðtal vegna barns síns.
HLUTVERK djákna í skólum er m.a.:
- djákni er fulltrúi þjóðkirkjunnar og kristinnar trúar
- djákni veitir kristilega sálgæslu og stuðning
- djákni skapar tengsl milli skóla, heimila og kirkju
- djákni hefur bæna- og helgistundir fyrir nemendur og
starfsfólk skólanna bæði í skólunum og í kirkjum safnaðarins
-djákni leiðbeinir s.s.góðan bekkjaranda, góða siði s.s. tillitsemi, og umburðarlyndi,
ræðir við börnin um lífið og dauðann, svarar spurningum sem upp koma við
andlát aðstandenda o.s.fr.
- djákni aðstoðar kennara við sérstök verkefni í kristnum fræðum s.s. kynningu
á kirkjuhúsinu sjálfu og kirkjulegum munum.
Með þessu móti og ýmsu öðru er djákni í VINALEIÐ tengiliður á milli uppeldi, menntunar og trúarlífs, tengiliður á milli heimili, skóla og kirkju.
Á milli þessara þriggja eininga þarf að vera gott samstarf því þær eiga að mynda heilbrigð vaxtar- og þroskaskilyrði fyrir barnið og standa vörð um velfarnað þess í hvívetna.
Þórdís Ásgeirsdóttir B.ed. og djákni
Mosfellsbær í mars 2002
Netfang : thordisa@kirkjan.is