Óréttmætar skuldir þjóðríkja ræddar á heimsþingi LH

Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands flutti kveðju til þingsins í Stuttgart í stuttu myndbandi, í dagskrá um óréttmætar skuldir á föstudaginn.  Í kveðjunni kom Karl biskup inn á mannlegu hliðina á fjárhagshruninu á Íslandi árið 2008 og samfélagslega ábyrgð kirkjunnar.

Lútherska heimssambandið hefur unnið með óréttmætar skuldir í ólíku samhengi og styður við umræður umlagalegar og siðferðilegar forsendur slíkra skulda í mörgum löndum. Samtalið um óréttmætar skuldir snertir bæði lönd sem skulda og lönd sem hafa lánað. Í Stuttgart  mættust fulltrúar frá báðum hliðum og ræddu hlutverk kirkjunnar í aðstæðum sem skapast þegar óréttmætar skuldir eru annars vegar. 

Fulltrúar frá Finnlandi og Costa Rica, Svíþjóðar og Líberíu mættust í slíku samtali, ásamt fulltrúa Noregs annars vegar og Argentínu hins vegar. Þau lönd hafa tekið upp aðgerðir sem miða að því að aflétta skuldum sem stofnað var til með óréttmætum hætti. 

„Kirkjan hefur langa reynslu af díakoníu til að létta áþján fátæktar. Nú þarf hún að stíga skref í átt að spámannlegri díakoníu,“ sagði Jürgen Kaiser. „Við þurfum að byggja upp nýtt fjármálakerfi, sem felur í sér umhyggju fyrir fólki og sköpuninni. Frá siðferðislegu sjónarhorni ber að sjálfsögðu að greiða skuldir, en svik og fjárkúgun eiga ekki að vera hluti af slíku.“

Heimsþingið í Stuttgart heldur þrjú opin samtöl, um loftslagsbreytingar og fæðuöryggi í heiminum og um óréttmætar skuldir og HIV/aids. Sérfræðingar um ofangreind málefni sátu fyrir svörum og ræddu málin út frá sínum sjónarhornum.

Lútherska heimsambandið er samtök 145 kirkna í 79 löndum, með alls rúmlega 70 milljónir meðlima.  Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“. 

Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.

Nánar

Frétt um samtalið á vef heimsþingsins