Ályktanir um réttlæti, mannréttindi og umhverfisvitund samþykktar í Stuttgart

Afrakstur heimsþings LH liggur annars vegar í ályktunum sem fara í gegnum lagahóp þingsins og hins vegar í skjali sem inniheldur boðskap þingsins til aðildarkirknanna. Á næst síðasta degi þingsins voru nokkar ályktanir um áherslur í starfi LH ræddar og afgreiddar.  

Réttlæti í samskiptum kynjanna


Fyrsta ályktunin lýtur að réttlæti í samskiptum kynjanna í kirkjunum. Kirkjurnar eru hvattar til að nýta og rækta hæfileika og gjafir bæði karla og kvenna í starfi sínu. 

Ályktun gegn mansali


Önnur ályktunin sem var samþykkt snertir baráttuna gegn mansali sem fer fram á ólíkum sviðum í samfélaginu. Kirkjurnar eru hvattar til að taka þátt í fræðslu um hvernig mansal birtist í ólíkum myndum, beita sér í umræðunni um löggjöf gegn mansali og til verndar þeim sem eru leyst úr slíkri ánauð. Einnig fordæmir þingið hvers konar lítillækkandi meðferð á fólki og mannslíkamanum í fjölmiðlum. 

 

Jafnt aðgengi að mat


Réttlátt aðgengi að mat verði forgangsatriði í starfi LH. Þetta samþykkti heimsþingið, og að kirkjurnar beiti sér í samstarfi við aðila sem vinna að bættu aðgengi að mat alls staðar á jörðinni.

LH er veitult samfélag


Samþykkt var  að ítreka skuldbindingar við kynja- og aldurskvóta í öllu starfi sambandsins. Viðmið LH er að 40% þátttakenda í stjórnum, ráðum og nefndum sambandsins séu konur og að 40% séu karlar. 20% sæta eiga að tilheyra ungu fólki, sem er undir þrítugu. Á sama hátt skuldbinda kirkjurnar sig til að 40% af þátttakendum í sameiginlegum fundum og nefndum LH sé úr hópi leikmanna.

 

Stuðningur við mannréttindi Dalíta


Þingið samþykkti að skuldbinda sig til að halda áfram að vinna að mannréttindum og frelsun Dalíta í Indlandi, Nepal og Suð-Austur Asíu.  Dalítar í heiminum eru um 250 milljónir og búa við kúgun og mismunun í heimalöndum sínum. 

Alþjóðaáætlun um minni hernaðarútgjöld


Þingið samþykkir að LH styðji áætlunina Global Priorities Initiative sem berst fyrir minni hernaðarútgjöldum í heiminum og auknum framlögum til mannúðarstarfa.

Ályktun um náttúrulegar auðlindir


Samþykkt var ályktun um að LH styðji vinnu sem miðar að því að gera ráðstöfun auðlinda gegnsæja og réttláta, bæði gagnvart heimamönnum á hverjum stað og náttúrunni sjálfri.

LH er umhverfisvænt samfélag


Samþykkt var að LH taki skref í þá átt að hljóta alþjóðlega vottun um sjálfbærni og umhverfislega ábyrgð í störfum sínum. Þetta hefði afleiðingar fyrir alla starfsemi hvort sem er í höfuðstöðvum LH, á starfsstöðvum um allan heim og á fundum og ráðstefnum sem sambandið stendur fyrir. 

Lokadagur þingsins er á morgun. Þá verður tekin afstaða til boðskapar þingsins í heild og þær ályktanir sem eru óafgreiddar lagðar fram.

Lútherska heimsambandið er samtök 145 kirkna í 79 löndum, með alls rúmlega 70 milljónir meðlima.  Frá 1947 hefur Lh starfað á sviði díakóníu, hjálparstarfs og guðfræði. Þingið í Stuttgart er ellefta heimsþing Lh og yfirskrift þess er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“. 

Þjóðkirkjan á tvo fulltrúa á þinginu, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttur, sem hefur setið í stjórn Lh frá heimsþinginu í Winnipeg 2003 og Magnea Sverrisdóttir. Sr. Árni Svanur Daníelsson sækir þingið einnig og starfar á samskiptasviði Lh meðan á þinginu stendur.

 

Skylt efni: