Kirkjuhúsið á menningarnótt

Kirkjuhúsið, Laugavegi 31

 Kirkjuhúsið verður opið frá 14 - 18 á menningarnótt. Eins og undanfarin ár munu Þorvaldur Halldórsson og Margrét Scheving skemmta gestum með tónlistarflutningi og boðið verður upp á kaffi, te og djús og sæti fyrir lúnar fætur. Á heila tímanum, klukkan 15, 16 og 17 verður skoðunarferð með leiðsögn um húsið þar sem saga þess er sögð. 

Kirkjan og kynferðisofbeldi

Die Nacht

Ég hef lýst því viðhorfi mínu oft og iðulega að kynferðisbrot og annað ofbeldi gegn konum og börnum líðist ekki innan vébanda þjóðkirkjunnar.

Lesa pistilinn á trú.is ...

Störf Fagráðs um meðferð kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar.

Fagráð um meðferð kynferðisbrota tók til starfa árið 1999.  Fagráðið starfar  samkvæmt starfsreglum kirkjuþings um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar nr. 955/2009 áður 738/1998. 
Frá upphafi hafa fimm mál borist til fagráðs.

Þjóðkirkjan tekur skýra afstöðu gegn kynferðislegu ofbeldi

Á fund kirkjuráðs 17. ágúst 2010 kom Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sem hafði óskað eftir fundi með kirkjuráði til að segja sögu sína.  Áður hafði hún sent erindi og átt fund með biskupi þar sem hún vildi brýna kirkjuna til að taka skýra afstöðu gegn kynferðislegu ofbeldi og lýsa það vera synd.

Matarúthlutun Hjálparstarfsins hefst aftur eftir sumarlokun

Matarúthlutun hjá Hjálparstarfi kirkjunnar

Matarúthlutun Hjálparstarfs kirkjunnar hefst aftur eftir sumarlokun miðvikudaginn 18. ágúst kl. 12-17. Föt eru afgreidd á þriðjudögum í samræmi við ákvörðun félagsráðgjafa eftir viðtal. Eins og undanfarin ár er veittur styrkur vegna skólabyrjunar eftir aðstæðum og mat félagsráðgjafa.

Þjóðkirkjan biður ekki um hlífð heldur sanngirni

Pétur Kr. Hafstein

Þjóðkirkjan hefur þegar tekið á sig gífurlegar skerðingar frá efnahagshruni og er reiðubúin til að axla þær byrðar sem ýtrasta sanngirni krefst. Þjóðkirkjan biður því ekki um hlífð heldur skilning og réttsýni.

Lesa pistilinn á trú.is ...

Barnaníð og barnavernd

Dr. Sigríður Guðmarsdóttir

Barnaníð á aldrei að hafa forgang yfir barnavernd hver sem í hlut á og því er hvert og eitt okkar undir tilkynningaskyldu til barnaverndar ef okkur grunar að líf og heilsa barns sé í veði. Við þurfum sem þjóðfélag að horfast í augu við það sértæka ofbeldi sem konur og börn búa við vegna misréttis kvenna og karla í samfélaginu í stað þess að tala það niður.

Ellefti sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Sunnudagurinn 15. ágúst er ellefti sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum.

Kirkjan og kynferðisbrot

Kross á gólfi Grafarvogskirkju

Í ljósi umræðu dagsins er rétt að minna á eftirfarandi aðgerðir af hálfu þjóðkirkjunnar undanfarin misseri varðandi kynferðisbrot og hvernig má koma í veg fyrir þau á vettvangi kirkjunnar.

Helgiganga og messa á Dagverðarnesi

Dagverðarneskirkja

Sunnudaginn 15. ágúst kl. 14 verður messað í Dagverðarnesskirkju á Fellsströnd en kl. 12.30 verður helgiganga í nágrenni kirkjunnar. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir þjónar fyrir altari og sr. Gunnþór Þ. Ingason prestur á sviði þjóðmenningar prédikar en þau leiða einnig helgistundir við Altarishorn og Kirkjuhóla fyrir messu.