Ævintýrin eru börnum bjóðandi

Harry Potter vekur viðbrögð. Í honum sjá sumir handbendi hins illa, en aðrir riddara dyggðanna. Bókum um Potter er hent á bókabál vestur í Ameríku, aðrir telja að Potterinn sé nú ekkert síðri en Ljónshjartað hennar Astrid Lindgren eða aðrar fyrimyndarhetjur. Umræðan er spennandi.

Viðtal við Önnu Birnu Jensdóttur

Sunnudaginn 6. janúar vígði biskup Íslands fjóra djákna til starfa. Þar af voru þrír vígðir til að starfa á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík. Nokkrir djáknar starfa við andlega aðhlynningu á sjúkrahúsum, en það vekur óneitanlega athygli að nýtt hjúkrunarheimili skuli frá upphafi ákveða að ráða til sín þrjá djákna. Undirrituð hafði samband við við Önnu Birnu Jensdóttur, framkvæmdastjóra Sóltúns til að fræðast um málið.

„Upp, upp mín sál ...“

Passíusálmarnir hafa um aldir verið Íslendingum hugstæðir og umfram allt um föstutímann. Þá hafa þeir verið förunautur almennings á vegi íhugunar krossferils frelsarans. Margur leggur við hlustir þegar þeir eru lesnir í Ríkisútvarpinu, eða grípa til þeirra til að lesa og hugleiða þann djúpa og sterka trúarboðskap og auðgi máls sem þar er að finna.

Lesa áfram ...

Ungt fólk, samfélagsleg gildi - siðferði

Fræðsluhópurinn Náum áttum stendur fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn 5. febrúar, kl. 8:30 - 10:30, á Grand Hótel í salnum Hvammi. Til umfjöllunar verður þemað Ungt fólk, samfélagsleg gildi - siðferði. Undir þessu þema verður komið inn á uppeldismál og hlutverk fjölskyldunnar, frelsishugtakið m.a. með tilliti til fíkniefnaneyslu og stöðu ungs fólks í dag, hlutverk kirkjunnar og stefnu hennar í forvarnarmálum.

Náttúruhamfarir í Kongó

Ætlað er að allt að hálf milljón manna hafi orðið fyrir barðinu á eldgosinu í Kongó með einum eða öðrum hætti. Fjöldi fólks hefur flúið yfir til Rúanda eða suður til Kivu Bukavu svæðisins. Alþjóðaneyðarhjálp kirkna (ACT) sem Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að tekur þátt í neyðaraðgerðum. Mikil þörf er á aðstoð af ýmsu tagi á þessu svæði.

Nánar á vef Hjálparstarfs kirkjunnar ...

Áfangar á ferð um siðfræðiboðskap Biblíunnar

Áfangar eru heiti á átta Biblíulestrum sem haldnir verða í samvinnu Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar og Reykjavíkurprófastsdæmis eystra. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur annast Biblíulestrana og fjallar efni þeirra um nokkra áhersluþætti í siðfræðiboðskap Jesú. Biblíulestrarnir verða haldnir í Breiðholtskirkju átta fimmtudaga frá 31. janúar til 21. mars, kl. 20 -22.

Er æskulýðsstarf tímaskekkja?

Þann 25. febrúar n.k. verður haldin ráðstefna í Grensáskirkju um unglingastarf kirkjunnar undir yfirskriftinni “Er æskulýðsstarf tímaskekkja!” Á ráðstefnunni verður fjallað um skipulagt unglingastarf í ljósi þess hverjar þarfir unglinga eru í dag. Er skipulagt unglingastarf staðnað, er það gamaldags og er kirkjan að ná árangri með því starfi sem unnið er í dag?

Fulltrúar Þjóðkirkjunnar á Landsmóti í Bandaríkjunum

Í æskulýðsfélögum kirkjunnar var auglýst eftir þátttakendum til þess að fara á Landsmót í Bandaríkjunum, sem evangelíska kirkan þar í land stendur fyrir. Nú er búið er að velja tvo fulltrúa sem fara á Landsmótið.

Öruggt spjall á internetinu

„Það er gaman að kynnast nýju fólki í gegnum tölvuna, en ekki gleyma að það eru ekki allir vinir þínir.“ er slagorð samstarfsverkefnis fimm aðila um öruggt spjall á internetinu.

Glímt við siðferðilegar spurningar

Námskeiðið Siðferðileg álitamál samtímans hefst í Leikmannaskólanum í næstu viku. Til að skoða innihald og tilgang námskeiðsins fengum við umsjónarmann þess, dr. Sólveigu Önnu Bóasdóttur guðfræðing, til að spjalla við okkur um siðfræði, einkum gildi kristinnar siðfræði í umræðu nútímans.