Íslenskur djákni í stjórn LHMagnea Sverrisdóttir djákni er nýr fulltrúi þjóðkirkjunnar í stjórn LH. Í stjórninni, sem var kosin á þinginu í Stuttgart í dag, sitja 49 fulltrúar frá öllum heimsálfum. Nýja stjórnin situr fram að næsta heimþingi LH og er æðsta yfirvald LH á milli heimsþinganna. Áttundi sunnudagur eftir þrenningarhátíðSunnudagurinn 25. júlí er áttundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum. Kirkjan er samfélag jafnréttis og öryggisHelmingur þátttakenda á heimsþinginu í Stuttgart eru konur. Í þeirra hópi eru biskupar, prestar, djáknar og óvígðir leiðtogar frá öllum heimshornum. Þessi myndarlegi hópur safnaðist saman við upphaf þinghaldsins í morgun og gekk syngjandi inn í salinn, þar sem fram fór kynning og umræða um þau málefni sem kvennafundur LH leggur fyrir þingið. Frá fordæmingu til sátta – IðrunarmessaÍ dag var haldin Iðrunarmessa á heimsþingi LH í Stuttgart. Messan markar þáttaskil í samstarfi lútherskra kirkna og Mennoníta. Afrakstur af áralöngu samtali á LH og samtaka Mennoníta er yfirlýsing sem heimsþingið í Stuttgart tekur undir. Daglegt brauð eru mannréttindi allraÞað er til nóg til af brauði til að fæða allan heiminn. Því hlýtur hungrið í heiminum að stafa af misskiptingu gæða. Sum hafa meira en nóg, önnur hafa alltof lítið. Slíkt er óásættanlegt. Fegurð og reisn náungans er brauðið sem nærir okkurAð gefa og þiggja brauð af hvert öðru snýst ekki bara um efnisleg gæði heldur um mannvirðingu, sagði erkibiskupinn af Kantaraborg, dr. Rowan Williams í aðalfyrirlestri heimsþingsins í Stuttgart í morgun. Hann fjallaði í erindi sínu um þema þingsins í Stuttgart og þýðingu þess fyrir kirkjuna sem samfélag gagnkvæmrar næringar. Daglegt brauð og lútherska kirkjan – yfirlitsræða forseta LHÞað er þrenging í heiminum þegar lútherskar kirkjur koma saman til heimsþingsins í Stuttgart, sagði Mark Hanson biskup, forseti Lúterska heimssambandsins (LH), í yfirlitsræðu sinni við upphaf þingsins. „Stríð geisa, sköpunin stynur undan neysluþunga okkar, flóttafólk leitar skjóls, þau sem hafa ekki aðgang að hreinu vatni og heilsugæslu eru ofurseld veikindum og dauða.“ Messað á Þönglabakka í FjörðumNæstkomandi sunnudag, þann 25. júlí kl. 14, verður messað í eyðibyggðinni á Þönglabakka í Fjörðum. Þar stóð kirkja sem tekin var ofan árið 1944 og er messað á kirkjustaðnum. Sjá nánar á vef Þönglabakkakirkju. Land sögu, sigra og sorgar - heimakirkjan kynnir sigÁ fyrsta kvöldi heimsþingsins í Stuttgart var glæsileg dagskrá á vegum heimakirkjunnar sem býður þing Lh velkomið til sín í þetta sinn. Evangelíska þjóðkirkjan í Württemberg kynnti sögu sína og þýsku þjóðarinnar með myndum, fjölbreyttri tónlist og leik. Þitt fólk er mitt fólk – opnunarguðsþjónusta heimsþingsinsEnn heitara var en ella í opnunarguðsþjónustu heimsþingsins í Stuttgart þar sem ofan á sumarhitann bættust fjölmargir ljóskastarar sem lýstu upp kirkjuskipið fyrir sjónvarpsútsendingu. |
![]() |
||||