Gef oss í dag vort daglegt brauð – heimsþing hefst á morgunÁ morgun hittast fulltrúar frá 140 lútherskum kirkjum frá öllum heimshornum í Stuttgart í tengslum við heimsþing Lútherska heimssambandsins (Lh). Yfirskrift þingsins er bænin „Gef oss í dag vort daglegt brauð“. Metþáttaka í pílagrímagönguUm 60 pílagrímar gengu frá Þingvöllum á Skálholtshátíð í einmuna blíðu dagana 17. - 18. júlí. Þetta er í sjöunda sinn sem slík ganga er skipulögð og hafa aldrei fleiri tekið þátt í henni. Guð, gróður og grill á NónholtiNæsta sunnudag 18. júlí er komið að árlegri sameiginlegri messu nágrannasóknanna þriggja, Árbæjar, Grafarholts og Grafarvogs í Reykjavík. Messan er haldin á Nónholti innst í Grafarvoginum kl. 11, en Nónholtið er á mörkum sóknanna þriggja. Sjöundi sunnudagur eftir þrenningarhátíðSunnudagurinn 18. júlí er sjöundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum. Unga kirkjan - Hólahátíð tileinkuð unga fólkinuHólahátíð verður haldin 13. - 15. ágúst næstkomandi. Að þessu sinni verður hún sérstaklega tileinkuð unga fólkinu. Yfirskrift dagskrár fyrir unga fólkið sem mætir á Hólahátíð er „Unga kirkjan“ . Skálholtshátíð 2010Skálholtshátíð 2010 verður haldin næstu helgi, dagana 17. og 18. júlí, en hún er að vanda haldinn þann sunnudag er næstur er Þorláksmessu á sumri. Morgunsöngur verður báða dagana kl. 9.00 í kirkjunni og aftansöngur kl. 18.00. Pílagrímaganga á SkalholtshátíðHin árlega pílagrímaganga frá Þingvöllum til Skálholts verður gengin 17.-18. júlí nk. Gangan hefst í Þingvallakirkju kl. 10 árdegis laugardaginn 17. júlí. Sjötti sunnudagur eftir þrenningarhátíðSunnudagurinn 11. júlí er sjötti sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum. Hið íslenska biblíufélag 195 áraHinn 10. júlí næstkomandi fagnar Hið íslenska biblíufélag 195 ára afmæli. Stofnfundur þess var haldinn fyrrnefndan dag árið 1815 á heimili sr. Geirs Vídalín, biskups, en biskupsgarður var þá að Aðalstræti 10 en það hús stendur enn. Félagið telst af þessum sökum elsta starfandi félag á Íslandi. Nýr vefur um íslenskar kirkjurNý íslenskur vefur, kirkjukort.net, hefur verið opnaður. Á vefnum eru upplýsingar um allar kirkjur og bænhús á Íslandi. Vefurinn byggir á Google Maps og geta notendur því auðveldlega séð staðsetningu allra kirkna. |
![]() |
||||