Fimmti sunnudagur eftir þrenningarhátíðSunnudagurinn 4. júlí er fimmti sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestra og bænir og sálm dagsins er hægt að lesa á vefnum. Sumartónleikar í Skálholtskirkju hefjast um helginaSumartónleikar í Skálholtskirkju hefjast 3. júlí. Í ár er 35 ára afmæli hátíðarinnar, en fyrstu tónleikarnir voru haldnir 12. júlí 1975. Sunnudaginn fjórða júlí verða hátíðartónleikar þar sem fluttur verður Maríuvesper eftir Claudio Monteverdi. Gildin á Þjóðfundinum 2009 á bókGildin sem valin voru á Þjóðfundinum 2009 verða viðfangsefni bókar sem Skálholtsútgáfan gefur út í haust. Útgáfan hefur gert samning við Gunnar Hersvein rithöfund og heimspeking um að skrifa verkið. Boðað til aukakirkjuþings 7. ágústBoðað er til aukakirkjuþings 2010 laugardaginn 7. ágúst næstkomandi kl. 9.00 í Grensáskirkju í Reykjavík. Gert er ráð fyrir því að aukaþingið standi aðeins þennan eina dag. Hópur presta, djákna og guðfræðinga hlýtur mannréttindaverðlaun Samtakanna 78Stór hópur presta, guðfræðinga og djákna hlaut mannréttindaverðlaun samtakanna 78 þegar þau voru veitt í fjórða sinn. Auður djúpúðga og keltneskar rætur í kristniUm 50 manns tóku þátt í helgigöngu á Krosshólaborg fyrir skömmu. Gengið var að Auðartóft og Hvammskirkju og hugað að írskum rótum kristni á Íslandi, meðal annars Auði djúpúðgu og heilögum Kólumkilla. Myndskreytta frásögn er að finna á vef Dalaprestakalls. Fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíðSunnudagurinn 27. júní er fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestra, bæn og sálm dagsins má lesa á vefnum. Alþjóðlegt mót Lúterskrar hjónahelgi á Laugarvatni
Rúmlega þrjú hundruð manns sækja alþjóðlegt mót sem hefst í dag á vegum samtaka er kallast Lútersk hjónahelgi. Samtökin halda námskeið eða hjónahelgar reglulega þar sem hjón taka frá tíma til að rækta samband sitt og gera gott hjónaband betra.
Helgistund á Esjubergi á KjalarnesdögumSunnudaginn 27. júní nk. kl 14 minnast Kjalnesingar þess að samkvæmt Landnámu stóð vagga kristinnar trúar á Kjalarnesi þar sem Örlygur Hrappson byggði fyrstu kirkju á Íslandi. Tölur úr safnaðarstarfinuSr. Gísli Jónasson prófastur ritar grein á trúmálavefnum þar sem hann birtir tölur úr safnaðarstarfi Reykjavíkurprófastsdæmis eystra síðasta vetur. |
![]() |
||||