Prestastefna 2010: Hirðir, leiðtogi á tímum uppgjörs og uppbyggingarPrestastefna verður haldin í Vídalínskirkju dagana 27. til 29. apríl 2010. Yfirskrift hennar er „Hirðir, leiðtogi á tímum uppgjörs og uppbyggingar“. 125 prestar og djáknar eru skráðir á Prestastefnu sem hefst með messu í Vídalínskirkju í Garðabæ, kl. 18 þriðjudaginn 27. apríl. Sr. Jóhanna Ingibjörg Sigmarsdóttir, prófastur á Eiðum, predikar og prestar Garðaprestakalls þjóna fyrir altari ásamt biskupi Íslands og vígslubiskupum. Kl. 21 flytur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, yfirlitsræðu sína. Miðvikudaginn 28. apríl verður umræða um samfélagsmál undir yfirskriftinni Uppgjör og uppbygging. Umfjölluninni er skipt í tvo hluta. Kl. 10:30 munu Lára Björnsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar, Sif Vígþórsdóttir, skólastjóri Norðlingaholtsskóla, og Vilborg Oddsdóttir, verkefnastjóri hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, fjalla um aðstæður barna og ungra fjölskyldna. Eftir hádegi, kl. 13:15 munu dr. Vilhjálmur Árnason, prófessor, og dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent, fjalla um siðferði og samfélag. Á dagskrá þann dag eru einnig umræður um hirðis- og leiðtogahlutverkið á tímum uppgjörs og uppbyggingar og um sérhæfða eftirfylgd í söfnuðum þjóðkirkjunnar. Fimmtudaginn 29. apríl verður rætt um nýtt frumvarp til laga um breytingar á hjúskaparlögum og um mat á stefnumótun þjóðkirkjunnar 2004-2010. Prestastefnu lýkur kl. 14:30 á fimmtudag með messu í Vídalínskirkju. ÁlyktanirÁlyktun Prestastefnu Íslands um samfélagsmál
Myndir frá Prestastefnu
NánarMyndir frá Menntadegi og aðalfundi PÍ Myndir frá Prestastefnu Skjöl og erindiSetningarræða Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands Kveðja til prestastefnu frá Lútherska heimssambandinu Kveðja til prestastefnu frá lúthersku kirkjunni í Bretlandi Hrun og hjálpræði - Gunnþór Þ. Ingason Mannskilningur farsæls samfélags - Sólveig Anna Bóasdóttir Frá fyrri árum
|
|||||||||||||