Valþjófsstaður

Þorlákshöfn

Hruni

Hofsós

Þingeyri

Starfsemi Prestssetrasjóðs

Prestssetrasjóður hefur á höndum umsjón og umsýslu prestssetra, sbr. lög nr. 137/1993, um prestssetur. Við gildistöku laganna tók stjórn Prestssetrasjóðs við þeirri yfirstjórn prestssetra sem verið hafði í höndum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, svo og réttinum og skyldum sem prestssetrunum fylgja. Í 7. gr.laga um prestssetur eru taldar upp tekjur sjóðsins sem eru, auk framlags úr kirkjumálasjóði, leigutekjur af prestssetrum og söluandvirði prestssetra auk annarra óreglubundinna tekna.
Þriggja manna stjórn sjóðsins er kosin af kirkjuþingi og getur kirkjuþing sett sjóðstjórninni starfsreglur og gert ályktanir um hvaðeina er lýtur að stjórn og starfsrækslu sjóðsins.


Kálfafellsstaður