Hvetja fólk og virkja til þátttöku
Það þarf að hvetja fólk til að taka undir í messusöng og alveg sérstaklega messusvörum, sögðu fulltrúar á héraðsfundi í Skaftafellsprófastsdæmi sem ræddu um framkvæmd stefnu og starfsáherslna Þjóðkirkjunnar.
Áfram
Bæklingur um messuna á vefinn
Búið er að setja bæklinginn Guðsþjónusta – samfélag í trú og gleði á vef stefnumótunar. Bæklingurinn er í tveimur pdf skjölum, útsíður og innsíður. Hvort skjal hentar fyrir A4 stærð. Hægt er að opna skjölin og prenta út til fjölföldunar í kirkjum.
Áfram
Stefnuskjalið gefið út
Skjalið stefna og starfsáherslur Þjóðkirkjunnar hefur verið gefið út. Stefnan var samþykkt á kirkjuþingi í október síðastliðnum.
Áfram
Hvað er framundan?
Kirkjuþing samþykkti á síðasta ári stefnu og starfsáherslur fyrir Þjóðkirkjuna til ársins 2010. Samkvæmt henni verður lögð sérstök áhersla á ákveðna málaflokka á næstu árum.
Áfram
Fleiri fréttir
|