Héraðsfundir
Héraðfundur Vestfjarðaprófastsdæmis 2011 var haldinn í Heydal við Ísafjarðardjúp laugardaginn 30. apríl. Eftirfarandi ályktun um Reykhólaprestakall var samþykkt á fundinum:
“Héraðsfundur Vestfjarðaprófastsdæmis haldinn í Heydal 30. apríl 2011 vekur athygli Kirkjuráðs á því að sóknarprestur í Reykhólaprestakalli er í tímabundinni afleysingu og ekki vitað um framtíðarskipan prestakallsins. Fundurinn telur óásættanlegt að sóknarprestur sitji ekki á Reykhólum sökum fjölda sóknarkirkja og mikilla vegalengda.”
Nánar má lesa um fundinn í fundargerðinni, sem er undir flipa hér hægra megin.