Prófastsdæmið
Vestfjarðaprófastsdæmi var stofnað þann 1. ágúst 2005. Það varð til við samruna Barðastrandarprófastsdæmis og Ísafjarðarprófastsdæmis. Hólmavíkurprestakalli var síðan bætt við prófastdæmið í ársbyrjun 2010. Prófastsdæmið nær því yfir allan Vestfjarðakjálkann.
Prófastur Vestfjarðaprófastsdæmis er sr. Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvík. Póstfang hennar er Völusteinsstræti 16, 415 Bolungarvík. Síminn hjá prófasti er 456-7435 eða 866-4963. Netfangið er sr.agnes@simnet.is
Starf prófasts er samkvæmt 7. gr. starfsreglna um prófasta (nr. 734/1998) m.a. eftirfarandi: “Prófastur er fulltrúi biskups í prófastsdæminu, trúnaðarmaður hans og ráðgjafi í kirkjulegum málum. Prófastur hefur í umboði biskups almenna tilsjón með kirkjulegu starfi í prófastsdæminu, stuðlar að því að það gangi sem best fyrir sig og lögum samkvæmt. Prófastur er ráðgjafi og tilsjónarmaður presta og sóknarnefnda.
Prófastur er í fyrirsvari fyrir prófastsdæmið að því er varðar sameiginleg málefni þess, gagnvart stjórnvöldum, stofnunum og einstaklingum. Hann fylgist með því að réttur kirkjunnar sé virtur í hvívetna”.
Prófastur boðar árlega til héraðsfundar og eru þar lagðar fram skýrslur um kirkjulegt starf í söfnuðum og teknar ákvarðanir um sameiginlega starfsemi. Af einstökum verkefnum ber hæst starfsemi Friðarsetursins í Holti. Sóknirnar leggja fé í sameiginlegan héraðssjóð, sem héraðsnefnd hefur umsjón með. Formaður héraðsnefndar er prófasturinn, sr. Agnes M. Sigurðardóttir. Með henni í héraðsnefnd eru þeir Bergur Torfason á Þingeyri og sr. Fjölnir Ásbjörnsson í Holti.
Vestfjarðaprófastsdæmi á tvo fulltrúa á Kirkjuþingi. Fulltrúi vestfirskra presta er sr. Leigur Ragnar Jónsson á Patreksfirði og fulltrúi leikmanna er Marinó Bjarnason, Tálknafirði.
Í Vestfjarðaprófastsdæmi eru átta prestaköll og er hverju þeirra þjónað af einum sóknarpresti. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir þjónar Reykhólaprestakalli en sóknarpresturinn sr. Sjöfn Þór er í leyfi. Sr. Leifur Ragnar Jónsson þjónar Patreksfjarðarprestakalli. Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir þjónar Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli. (Sem stendur er enginn skipaður sóknarprestur í Þingeyrarprestakalli en embættið verður væntanlega auglýst innan tíðar). Sr. Fjölnir Ásbjörnsson þjónar Holtsprestakalli. Sr. Magnús Erlingsson þjónar Ísafjarðarprestakalli. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir þjónar Bolungarvíkurprestakalli og sr. Sigríður Óladóttir þjónar Hólmavíkurprestakalli.