Vestfjarðaprófastsdæmi

 

Sóknir

Í Vestfjarðaprófastsdæmi eru 37 sóknarkirkjur.  Og eru þær taldar upp hér að neðan.  Að auki eru þrettán aðrar kirkjur eða kapellur, sem stundum er messað í.

Í Reykhólaprestakalli eru sex sóknarkirkjur.  Fyrir sunnan Gilsfjörð eru Skarðskirkja á Skarðströnd og Staðarhólskirkja.  Svo er Flateyjarkirkja á Breiðafirði.  Á Barðaströndinni eru Reykhólakirkja, Garpsdalskirkja og Gufudalskirkja.  Prestssetrið er á Reykhólum.

Í Patreksfjarðarprestakalli eru fjórar sóknarkirkjur.  Þetta eru Patreksfjarðarkirkja (Eyrarkirkja), Sauðlauksdalskirkja, Breiðuvíkurkirkja og Saurbæjarkirkja á Rauðasandi.  Prestssetrið er á Patreksfirði.

Í Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli eru fjórar sóknarkirkjur.  Þetta eru Bíldudalskirkja, Tálknafjarðarkirkja, Hagakirkja og Brjánslækjarkirkja.  Prestssetrið er á Bildudal.

Í Þineyrarprestakalli eru fimm sóknarkirkjur.  Þetta eru Hrafnseyrarkirkja við Arnarfjörð, Þingeyrarkirkja, Mýrakirkja í Dýrafirði, Núpskirkja og Sæbólskirkja á Ingjaldssandi.  Pressetrið er á Þingeyri.

Í Holtsprestakalli eru fjórar sóknarkirkjur.  Þetta eru Holtskirkja í Önundarfirði, Kirkjubólskirkja í Valþjófsdal og Flateyrarkirkja.  Einnig tilheyrir prestakallinu Suðureyrarkirkja við Súgandafjörð.  Prestssetrið er í Holti.

Í Ísafjarðarprestakalli eru tvær sóknarkirkjur.  Það eru Ísafjarðarkirkja og Unaðsdalskirkja á Snæfjallaströnd.  Prestssetrið er á Ísafirði.

Í Bolungarvíkurprestakalli eru fjórar sóknarkirkjur.  Það er Hólskirkja í Bolungarvík og Súðavíkurkirkja við Álftafjörð.  Við innanvert Ísafjarðardjúpið eru Ögurkirkja og Vatnsfjarðarkirkja.  Prestssetrið er í Bolungarvík.

Í Hólmavíkurprestakalli eru átta sóknarkirkjur.  Tvær þeirra, Nauteyrarkirkja og Melgraseyrarkirkja standa við Ísafjarðardjúpið.  Hinar sex eru á Ströndum.  Óspakseyrarkirkja er syðst.  Hún stendur við Bitrufjörð.  Þar fyrir norðan eru Kollafjarðarneskirkja, Hólmavíkurkirkja og Drangneskapella.  Kaldrananeskirkja stendur við Bjarnarfjörð syðri.  Norður í Trélkyllisvík er svo Árneskirkja.  Prestssetrið er á Hólmavík.

     

    Safnaðarheimili Hólskirkju, Aðalstræti 22, 415 Bolungarvík. Sími 456 7435 · Kerfi RSS