Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

Hvernig glímir ungt fólk við sorg?
Wilhelm Norðfjörð sálfræðingur  fjallar um “Ungt fólk og sorg” á fræðslukvöldi hjá Nýrri dögun, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð, n.k. fimmtudagskvöld 2. febrúar. Fyrirlesturinn er í safnaðarheimili Háteigskirkju og hefst kl. 20:30.  Fyrilesturinn er öllum opinn.

Á undan eða kl. 19:00 verður opið hús í safnaðarheimilinu. Þangað getur fólk komið og fengið sér kaffi og rætt saman.

Lesa áfram á síðu Nýrrar dögunar

Sýning á handverki Magneu Þorkelsdóttur
Laugardaginn 28. janúar sl. var opnuð í ÞJóðminjasafninu sýning með handverki frú Magneu Þorkelsdóttur sem í áratugi vann ómælt starf í kirkjunni sem prestfrú, organisti, í félagsstarfi og sem biskupsfrú. Magnea Þorkelsdóttir var mikil hannyrðakona og urðu mörg listaverk til í höndum hennar. Hún saumaði fjölda þjóðbúninga bæði á sig og afkomendur sína. Á sýningunni verða valdir búningar úr safni fjölskyldunnar. Vegleg bók með sýnishorni af handavinnu frú Magneu er gefin út sem sýningarskrá.

Sýningin stendur til 28. ágúst.  Frekari upplýsingar eru á vef Þjóðminjasafnsins

Ríkiskirkja, þjóðkirkja og mannréttindi – vandi?
Þann 27. janúar kl. 12.00 heldur Halvor Nordhaug biskup í Bergen erindi sem kallast “Ríkiskirkjan, þjóðkirkja og mannréttindi – vandi?” Fyrirlesturinn verður haldinn  í kapellu Háskólans í Aðalbyggingu og hefst kl. 12:00.  Þar fjallar  Halvor Norhaug um spurninguna hvort ríkiskirkjuskipan í Noregi brjóti í bága við trúfrelsi og hvort mögulegt sé a að halda fast við ríkiskirkju í fjölhyggjusamfélagi nútímans.

Undanfarna áratugi hefur aukin aðgreining kirkju og ríkis átt sér stað í Noregi. Þá hefur kirkjuskipan landsins verið mjög til umræðu. Bæði í kirkjunni og utan hennar gætir þeirrar skoðunar að ríkiskirkjuskipan brjóti í bága við trúfrelsi. Í fyrirlestrinum verður glímt við spurninguna um hvort svo sé og hvort mögulegt sé að halda fast við ríkiskirkju í fjölhyggjusamfélagi nútímans.

Í ár verður norsku stjórnarskránni breytt m.a. í þá veru að ríkisstjórnin mun ekki lengur skipa biskupa landsins í embætti. Það er þó álit margra að breytingarnar gangi of skammt. Aðrir telja að ríkið geti ekki að fullu skilist við kirkjuna án þess að snúa baki við sögu sinni og sérkennum. — Varpað verður ljósi á umræðuna með dæmum frá öðrum löndum í Evrópu.

Halvor Nordhaug (f. 1953) var áður forstöðumaður stofnunar í kennimannlegum fræðum við Det Teologiske Menighetsfakultet í Ósló. Hann hefur ritað fjölda bóka og greina m.a. um tengsl ríkis og kirkju.

Fyrirlesturinn er í boði Guðifræði- og trúarbragðafræðideildar Hí og norska sendiráðsins.

Samkirkjumál heima og að heiman
Málþing um samkirkjumál verður haldið í Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 24. janúar kl. 16.00-18.00.  Sr. María Ágústsdóttir, doktorsnemi, fjallar um samkirkjumál hérlendis og erlendis. Viðbrögð við erindi hennar veita  sr. Eric Guðmundsson, Aðventkirkjunni, sr. Jakob Rolland, Kaþólsku kirkjunni og Vörður Leví Traustason, forstöðumaður, Hvítasunnukirkjunni.  Stjórnandi er Steinunn A. Björnsdóttir.

Málþingið er hluti af alþjóðlegri samkirkjulegri bænaviku og er skipulagt af Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga.

Trú og trúarbrögð á 21. öld
Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar og Guðfræðistofnun Háskóla Íslands efna til málþings í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 20. janúar kl. 13 – 16. Yfirskrift málþingsins er: Trú og trúarbrögð á 21. öld.  Aðalfyrirlestur flytur dr. Hjalti Hugason, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Heiti fyrirlestursins er „Trú og trúarstofnanir á 21. öldinni - áskoranir og möguleikar.“

Viðbrögð við erindi dr. Hjalta flytja:

Guðbjörg Lilja Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur og sjálfstætt starfandi fræðimaður í Reykjavíkurakademíunni.

Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir, jarðfræðingur og sviðsforseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.

Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, guðfræðingur, héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og stundakennari við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ.

Málþingið er öllum opið.

Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika
Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika fyrir einingu kristninnar hefst á miðvikudaginn 18.janúar.  Þessa viku sameinast kristið fólk um allan heim í bæn fyrir einingu. Bænavikan er undirbúin af kirkjum sem tilheyra samkirkjulegum samtökum er nefnast Alkirkjuráðið (World Council of Churches) og kaþólsku kirkjunni.

Kirkjum á ákveðnu svæði heims er falið að undirbúa efnið og árið 2012 kemur það frá Póllandi þar sem fólk frá ýmsum kirkjudeildum mótmælenda, kaþólskum kirkjum og rétttrúnaðar, unnu að undirbúningi. Þemað er „Sigur Krists umbreytir okkur!“ og kemur úr I. Korintubréfi, 15:51-58 og vísar í sögu Póllands og orðræðu sigurs og ósigurs.

Upplýsingar um dagskrá, ritningarlestra og fleira má nálgast á vef bænavikunnar

Dagskrá bænavikunnar á höfuðborgarsvæðinu

Miðvikudagur 18. janúar:

Kl. 12.00  Bænastund í Friðrikskapellu, Hlíðarenda

Kl. 20.00  Samkoma í Kristskirkju, Landakoti

Fimmtudagur 19. janúar:

Kl. 18.00 Blessun vatnsins í Nauthólsvík

Kl. 20.00 Samkoma á Hjálpræðisher

Föstudagur 20. janúar:

Kl. 20.00 Samkoma í Aðventkirkjunni, Ingólfsstræti.

Sunnudagur 22. janúar:

Kl. 11.00  Útvarpsguðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju.

Þriðjudagur 24. janúar

Kl. 16.00 Málþing í Seltjarnarneskirkju:Samkirkjulegt starf heima og að heiman. María Ágústsdóttir doktorsnemi flytur erindi. Fulltrúar trúfélaga bregðast við.

Kaffi og umræður.

Málþinginu lýkur kl. 18.00

Miðvikudagur 25. janúar

Kl. 12.00  Bænastund í Friðrikskapellu, Hlíðarenda

10 ára afmæli Sóltúns fagnað með hátíðarguðsþjónustu
Hjúkrunarheimilið Sóltún á 10 ára starfsafmæli um þessar mundir. Af því tilefni var hátíðarguðsþjónusta 8. janúar. Íbúar, starfsfólk og gestir fjölmenntu og tóku þátt í messunni með biskupi Íslands, prófasti og héraðspresti Reykjavíkurprófastsdæmis vestra auk djákna heimilisins Jóni Jóhannssyni.

Sjá myndir frá athöfninni

Anna Birna Jensdóttir forstjóri Sóltún sagði frá því við þetta tækifæri að allt frá upphafi hefur verið trúarleg þjónusta á heimilinu sem hefur falið í sér helgihald, sálgæslu, samfylgd með íbúum, aðstandendum og starfsfólki. Sóltún hefur þróað trúarlegu þjónustu sína og þegar heimilið opnaði voru þrír djáknar kallaðir til starfa, hver og einn í 50% stöðugildi. Hugmyndin var að einn djákni væri á hverri hæð með tvær deildir. Þannig var skipulagið í nokkur ár en nú er einn djákni þar í fullu starfi.

Boðið hefur verið upp á sérstaka stuðningshópa fyrir aðstandendur. Prestþjónusta er sótt til sóknarprests Laugarnessóknar og boðið er upp á guðþjónustur reglulega í samkomusal heimilisins.

12 spora námskeið í Háteigskirkju - kynningarfundur
Miðvikudaginn 11. janúar nk. verður kynningarfundur í Háteigskirkju  kl. 19.30 fyrir 12 spora námskeiðið,  Andlegt ferðalag -  með Vinum í bata.  Námskeiðið verður haldið í safnaðarheimili Háteigskirkju. Allir áhugasamir, utan sóknar sem innan, eru hvattir til að kynna sér málið og láta þetta ekki framhjá sér fara.

Það eru allir hjartanlega velkomnir og nánari upplýsingar má finna hér…

Hátíðarhljómar við áramót
Síðustu tónleikar ársins hér á Íslandi verða að venju í Hallgrímskirkju á gamlársdag, 31. desember, kl. 17. Listvinafélag Hallgrímskirkju býður í 19. sinn upp á tónleika undir yfirskriftinni Hátíðahljómar við áramót. Þeim er ætlað að kalla fram hátíðleika sem hæfir þegar ár er kvatt og nýju ári heilsað. Á þeim undanförnu 18 árum sem Ásgeir, Eiríkur og Hörður hafa glatt tónleikagesti á gamlárskvöld með leik sínum hafa þeir tvisvar boðið einsöngvurum að koma fram með sér, þeim Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Kristni Sigmundssyni. Í tilefni af 30. afmælisári Listvinafélagsins bætast þeir Einar St. Jónsson trompetleikari og Eggert Pálsson nú í hópinn.Lúðraþytur og trumbusláttur hafa um aldir tengst hátíðum. Fyrirmyndir þess má finna í elstu sálmabók kirkjunnar, Saltaranum, þar sem Drottinn er lofaður með bumbum og málmgjöllum. Lúðraköll – fanfarar- tengjast konunglegum lífvörðum og herkvaðningu af ýmsum toga. Í kirkjunni hafa þessi hljóðfæri meðal annars verið nýtt til að lýsa upprisu Krists á páskum og dýrðarsöng englanna á Betlehemsvöllum.  Á barroktímanum voru þessi hljóðfæri í hávegum höfð. Stóratburðum í lífi safnaða og einstaklinga var lyft upp með gjallandi hljómi. Eftir því sem tímar liðu og orgelið þróaðist kom í ljós, hve vel þessi hljóðfæru áttu saman. Í dag býður orgelið upp á möguleika heillar hljómsveitar með strengjum, flautum og lúðrum.

Tónlist  tónleikanna á  öll uppruna sinn á barokktímabilinu. Flest verkin hafa hljómað hér áður en nú heyrast í fyrsta skipti Fanfar eftir Zelenka og Sónata eftir Gabrieli. Af hefðbundnu verkunum má nefna Forleik að Te Deum eftir Charpentier (EBU lagið) og Forleik að Flugeldasvítunni eftir Handel. Þessi verk hafa Eiríkur og Ásgeir umritað fyrir þrjá trompeta auk þess sem Eggert hefur unnið pákurödd fyrir þau. Þá eru einnig á efnisskránni tvær sónatínur eftir Johann Pezel og hið fræga Adagio eftir Albinoni sem Ítalinn Giazotto umritaði.

Forsala aðgöngumiða er í Hallgrímskirkju og er hún opin kl. 9-17, sími 510 1000.

Miðaverð til listvina er 1.500 en almennt verð er 2.900- annað afsláttarverð er 2.000 kr.

Ásgeir Hermann Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson luku allir tónlistarnámi við Tónlistarskólann í Reykjavík áður en þeir héldu til framhaldsnáms í Bandaríkjunum. Ásgeir lauk BM prófi frá Mannes College of Music í New York, Eiríkur lauk BA prófi frá Merklee College of Music í Boston og MFA gráðu frá Californian Institute of the Arts í Los Angeles og Einar BM prófi frá Indiana University. Í dag eru þeir allir fastráðnir hljóðfæraleikarar við Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að vera mjög virkir í tónlistarlífi höfuðborgarsvæðisins. Þeir hafa allir leikið með Kammersveit Reykjavíkur,  Kammersveit Hallgrímskirkju, Hljómsveit Íslensku óperunnar og leikið með ýmsum stórsveitum, svo sem Stórsveit Ríkisútvarpsins og Stórsveit Reykjavíkur auk þess sem Eiríkur er einn af stofnfélögum Caput hópsins. Einnig kenna þeir trompetleik við tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu.

Eggert Pálsson stundaði nám á píanó og slagverk við Tónlistarskólann í Reykjavík og hélt þaðan til Vínar þar sem hann lagði stund slagverksnám við Listaháskólann í Vín, Austurríki. Hann hefur lengi verið fastráðinn pákuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands auk þess að taka virkan þátt í íslensku tónlistarlífi undanfarna þrjá áratugi. Hann er félagi í slagverkshópnum Benda og Kammersveit Reykjavíkur. Hann hefur einnig leikið með tónlistarhópnum Caput og er félagi í sönghópnum Voces Thules sem flytur margar tegundir söngtónlistar, helga sem heiðna.

Hörður Áskelsson hefur verið organisti og kantor Hallgrímskirkju allt frá því hann lauk framhaldsnámi í Düsseldorf í Þýskalandi árið 1982. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu listalífs kirkjunnar og stóð meðal annars að stofnun Listvinafélags Hallgrímskirkju, Kirkjulistahátíðar og Alþjóðlegs orgelsumars við Hallgrímskirkju. Þá stofnaði hann bæði Mótettukór Hallgrímskirkju (1982) og Kammerkórinn Schola Cantorum (1996) sem hann hefur stjórnað frá upphafi. Sem organisti hefur Hörður haldið tónleika í mörgum stærstu kirkjum Evrópu, m.a. í St. Michaelis í Hamborg, Kölnardómkirkju, St. Sulpice í París, dómkirkjunni í Brüssel og dómkirkjunni í Helsinki. Hann hefur hlotið margs háttar viðurkenningar fyrir framlag sitt til tónlistarlífs á Íslandi, þ.á.m. Hin íslensku tónlistarverðlaun og Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu.

Hörður, Ásgeir og Eiríkur komu fram á tónleikum í Fílharmoníunni í St. Pétursborg fyrir troðfullu húsi ( 2000 manns) haustið 2005 við frábærar undirtektir og einnig var þeim boðið að leika á tónlistarhátíðinni í Frankfurt- Höchst í Þýskalandi og Akureyrarkirkju. Geisladiskurinn Trompetería með þeim félögum hefur hlotið mikla dreifingu og er til sölu í Hallgrímskirkju og víðar.

Gleðilegt nýtt ár - helgihald í kirkjunum yfir áramót
Fjölbreytt helgihald er í kirkjum prófastsdæmisins um og áramót. Aftansöngur er í kirkjum á gamlársdag kl. 18.   Nýtt ár hefst víðast hvar með hátíðarmessum klukkan 14.00.  Í Dómkirkjunni er Á nýársdag er hátíðarmessa kl. 11. Biskup Íslands , sr.Karl Sigurbjörnsson prédikar en Dómkirkjuprestar þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormars. Messunni er að venju útvarpað.

Nánari upplýsingar um helgihald má nálgast á heimasíðum kirknanna:

Áskirkja, Bústaðakirkja, Dómkirkjan, Grensáskirkja, Hallgrímskirkja, Háteigskirkja, Langholtskirkja, Laugarneskirkja, Neskirkja, Seltjarnarneskirkja