Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

 

Prófastsdæmið

Á skrifstofu prófastsdæmisins í Hallgrímskirkju starfa prófastur, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, héraðsprestur, sr. María Ágústsdóttir og skrifstofustjóri, Margrét Bragadóttir.

  • Viðtalstími prófasts er þri.-fi. kl. 10.30-12 í síma 510 1030, netfang jondalbu@hallgrimskirkja.is.
  • Viðtalstími héraðsprests í Hallgrímskirkju er mánudaga og miðvikudaga kl. 13-14 í síma 510 1032, netfang maria@hallgrimskirkja.is
  • Skrifstofustjóri er við alla virka daga frá kl. 9-12 í síma 510 1030 og er netfang prófastsdæmisins rpv@hallgrimskirkja.is.
  • Ellimálaráð Reykjavíkurprófastsdæma eystra og vestra er staðsett í Breiðholtskirkju, Þangbakka 5, 109 Reykjavík, sími 557 1666 og netfang ellimal@internet.is. Valgerður Gísladóttir er framkvæmdastjóri ráðsins.
  • Æskulýðssamband Reykjavíkurprófastsdæma, ÆSKR, er með skrifstofu í Grensáskirkju, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík, sími 580 0825, netfang aeskr@kirkjan.is. Starfsmaður ÆSKR er Dagný Halla Tómasdóttir. Sjá www.kirkjan.is/annall/aeskr.
  • Sr. Hans Markús Hafsteinsson, héraðsprestur, er með skrifstofu í Grensáskirkju, s. 528 4428, netfang hansmark@centrum.is.

Meðal þeirra verkefna sem prófastsskrifstofan annast er undirbúningur og framkvæmd margvíslegra námskeiða og funda og ýmiskonar þjónusta við starf söfnuðanna og sérþjónustunnar. Þá er leitað til prófastsskrifstofunnar með fyrirspurnir og beiðnir, bæði frá kirkjulegum aðilum utan prófastsdæmis, einstaklingum og fjölmiðlum.

Starf prófasts er samkvæmt 7. gr. starfsreglna um prófasta (nr. 734/1998) m.a. eftirfarandi:

“Prófastur er fulltrúi biskups í prófastsdæminu, trúnaðarmaður hans og ráðgjafi í kirkjulegum málum. Prófastur hefur í umboði biskups almenna tilsjón með kirkjulegu starfi í prófastsdæminu, stuðlar að því að það gangi sem best fyrir sig og lögum samkvæmt.
Prófastur er ráðgjafi og tilsjónarmaður presta og sóknarnefnda.
Prófastur, sem formaður héraðsnefndar, er í fyrirsvari fyrir prófastsdæmið að því er varðar sameiginleg málefni þess, gagnvart stjórnvöldum, stofnunum og einstaklingum. Hann fylgist með því að réttur kirkjunnar sé virtur í hvívetna”.

Um héraðspresta segir m.a. í starfsreglum um presta (nr. 735/1998) að “héraðsprestur annist reglulega messuafleysingu, þar sem ástæða þykir til” (35. gr.) og “aðstoði prófast og presta við að skipuleggja fræðslumál á þjónustusvæði sínu” (36. gr.).

Prestar og djáknar

Alls 40 prestar heyra undir Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, þar af 18 prestar í hinum 10 sóknum, 18 sérþjónustuprestar, og 4 prestar í íslensku kirkjunni í útlöndum. Sérþjónustuprestar starfa á víðum vettvangi. Sjö eru staðsettir á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Hinir ellefu gegna eftirfarandi embættum og störfum: Fangaprestur, prestur kirkju heyrnarlausra, prestur innflytjenda, prestur fatlaðra, prestur kvennakirkjunnar, skólaprestur, miðborgarprestur, prestur á Hrafnistu, prestur á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund og tveir héraðsprestar.

Þá eru tíu djáknar starfandi innan prófastsdæmisins. Þar af er einn djákni á Landspítalanum við Hringbraut, einn á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund og sömuleiðis einn á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Tveir djáknar starfa á stofnunum í tengslum við söfnuði, einn í Hátúni með tengsl við Áskirkju og annar á Heilsugæslunni í Lágmúla með tengingu við Laugarneskirkju. Í Hallgrímskirkju og Áskirkju eru djáknar ráðnir til starfa í söfnuði. Að auki er vígður djákni að störfum á svæði prófastsdæmisins, á Biskupsstofu.

Héraðsnefnd

Héraðsnefnd prófastsdæmisins fundar mánaðarlega og sinnir m.a. verkefnum er snerta rekstur á sameiginlegum verkefnum prófastsdæmanna í Reykjavík, en þau eru m.a. Ellimálaráð, ÆSKR, Fjölskylduþjónusta kirkjunnar og Miðbæjarstarfið. Í héraðsnefnd sitja nú prófasturinn, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, sr. Ólafur Jóhannsson, sóknarprestur í Grensáskirkju, og Jóhannes Pálmason, formaður sóknarnefndar Hallgrímskirkju.

Héraðsfundur

Héraðsfundur er haldinn í maí ár hvert og auka-héraðsfundur að hausti, gjarnan í tengslum við málefni Kirkjuþings. Á héraðsfundi eru lagðar fram skýrslur um starfsemi prófastsdæmisins og reikningar safnaða og héraðssjóðs, auk fjárhagsáætlunar sjóðsins. Þá er fjallað um ýmis málefni sem varða starf kirkjunnar í prófastsdæminu. Kosningar fara fram þegar það á við.

 

Hallgrímskirkju, Skólavörðuholti, 101 Reykjavík. Sími 510 1030 , fax 510 1001 · WP · Kerfi RSS