Heimsráðstefnan Faith for nature hefst frá Skálholti í dag

5. október 2020

Heimsráðstefnan Faith for nature hefst frá Skálholti í dag

Alheimsráðstefnan Faith for Nature – Multi-Faith Action/ Trú fyrir jörðina – Fjöltrúarlegar aðgerðir, hefst í Skálholti í dag.

Það hefur sjálfsagt ekki ekki farið framhjá neinum að hertar sóttvarnaraðgerðir tóku gildi á miðnætti. Það hefur hins vegar ekki áhrif á gang ráðstefnunnar sem fer fram nánast að öllu leiti í gegnum netið.

Setning ráðstefnunnar frá Skálholti í dag mun fara fram í samræmi við hertar sóttvarnarreglur. Það á einnig við allt starf ráðstefnunnar næstu daga.

Ráðstefnan fer nánast að öllu leyti fram í netstreymi og fjarfundum til að draga úr umhverfisspori, bregðast við COVID-veirufaraldinum og gera breiðari hóp mögulegt að taka þátt. Hægt er að fylgjast með dagskrá ráðstefnunnar og alþjóðlegum útsendingum á vefnum; http://www.faithfornature.org

Á fimmta hundrað einstaklingar frá 58 löndum hafa skráð sig til þátttöku í ráðstefnunni. Á meðal þeirra eru shamanar frá Kanada og Grænlandi; biskupar af Norðurlöndunum og frá Norður- Ameríku, Bosníu Hersegóvínu, Filipseyjum, Vatíkaninu, Kenía; leiðtogar pygmía frá Austur-Kongó og frumbyggja í Amazon-skóginum; imam frá Nígeríu og íslamskir fræðimenn frá Katar; kennari frá sjálfbærnisþorpi í Indlandi og prófessorar úr Evrópu og frá Bandaríkjunum.

Trúarsamfélög um heim allan eru mikilvægir gerendur í þeirri djúpstæðu umbreytingu sem verða þarf til þess að forða yfirvofandi loftslagsvá og mæta öðrum áskorunum í umhverfismálum. Andleg gildi móta lífshætti meira en 80% jarðarbúa. Meira en helmingur allra skóla í heiminum er rekinn af trúfélögum. Til samans framleiða trúfélög fleiri rit og bækur en nokkur annar aðili og teljast þriðji stærsti hópur fjárfesta í heiminum.

Ráðstefnan hefur það markmið að sameina ólíkar trúarstofnanir, lífskoðunarfélög og trúarbrögð um heim allan til aðgerða sem tryggt geta heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna framgang. Stofnun bandalags um trú í þágu jarðar innan vébanda Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. Faith for Earth Coalition) verður meðal umfjöllunarefna á ráðstefnunni.

Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna hefur lýst viðburðinum sem sögulegum, enda munu leiðtogar og fulltrúar helstu trúarbragða heims taka virkan þátt í honum.

Ráðstefnan verður sett 5. október af Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, við opnunarathöfn þar sem m.a. Inger Andersen, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, tekur til máls og Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, flytur blessunarorð. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra flytur erindi á ráðstefnunni og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands, stýrir pallborðsumræðum á lokadegi hennar. Prófessor Azza Karam, aðalritari samtakanna Religions for Peace, og Leilani Münter, ein besta kappaksturskona í heimi og aðgerðasinni, eru einnig umræðustjórar í alþjóðlegum útsendingum.

Meðal leiðtoga sem flytja ávörp á ráðstefnunni eru: Patríarkinn Bartholomew l, andlegur leiðtogi Rétttrúnaðarkirkjunnar (Grísk-Orþódox); Dr. Martin Junge, forseti Lúterska heimssambandsins; Mohamed Abdelsam fyrir hönd Stór-Imamsins af Al-Azhar, fulltrúi Súnní-Íslam; Stór-Ayatollah Muhammad-Taqi al-Husayni al-Modarresi, fulltrúi Shia-Íslam; Aðalrabbíni David Rosen, alþjóðaforseti samtakanna Religions for Peace; Bani Dungal, aðalfulltrúi alþjóðasamfélags Bahá‘í-trúarinnar og Meistari Shih Cheng Yen, búddisti og stofnandi mannúðarsamtakanna Tzu Chi á Taiwan

Eftir setningu ráðstefnunnar í Skálholti fer áframhaldandi vinna fram í vinnustofum á vefnum með útstöðvar í Asíu, Afríku, Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku.

Stefnt er að því að niðurstaða ráðstefnunnar verði kynnt í tengslum við frekari undirbúning að umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna, sem haldið verður í febrúar 2021, og væntanlega sett þar fram sem ályktunartillaga. New York Times, BBC, CBC, NatGeo, Mongabay og EcoNews munu einnig fjalla um niðurstöður ráðstefnunnar.


  • Fjölmiðlar

  • Ráðstefna

  • Alþjóðastarf

Ólafur Egilsson

Vinir Hjálparstarfsins fræðast um starfið

24. apr. 2024
...stilla saman strengi
Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta