Sálmur 16
- Ó, Herra Guð, þér heiður ber,
- mitt hjarta lofgjörð flytur þér.
- Þú annast minn æ hefur hag,
- þín hönd mig geymdi nótt og dag.
- Þá réttum vegi veik ég frá
- og villtist lasta brautir á,
- þín föðurgæska guðdómleg
- mér greiddi' að nýju réttan veg.
- Þá huggun þráði hjarta mitt,
- þú huldir stundum auglit þitt.
- Þó lést þú aldrei einan mig,
- og aftur náð þín birti sig.
- Ég alla blessun þakka þér,
- sem þinnar líknar vottur er,
- en einkum glaður þakka' eg það,
- að þú sem barn mig tókst þér að.
Gellert - Sb. 1801 - Valdimar Briem