
- Helga Bragadóttir
- Prestur

Arkitekt Digraneskirkju var Benjamín Magnússon. Byggingarmeistari var Hallvarður S. Guðlaugsson. Kirkjan var vígð 17. sunnudag eftir þrenningarhátíð, þann 25. september árið 1994.
Um kirkjubygginguna segir arkitektinn: „Gömlu kirkjubyggingarnar og klaustrin stóðu hátt þar sem þær sæjust víða að, gjarna á kletti sem var góð undirstaða fyrir öfluga miðaldabyggingu. Önnur byggð dreifðist síðan út frá þessum voldugu byggingum. Kirkjurnar voru háar og áberandi, en klaustrin voru aftur á móti lágar en traustar byggingar með litlum og mjóum gluggum sem hleyptu lítilli birtu inn. Ég vildi flétta þetta tvennt saman, traustvekjandi lága umgjörð sem túlka mátti sem hið ytra og sýnilega, en þar fyrir innan væri fíngerðari bygging, kirkjuskipið sjálft. Þessi hugmynd þróaðist svo hjá mér í þá átt að ég sá fyrir mér bát á hvolfi – Örkina hans Nóa. Þá vildi ég sjá upp í böndin og þannig var hugmyndin að þakinu komin. Skip, fiskur og veiðimaður eru þekkt tákn í kristinni trú og ég nota þau sem þak yfir kirkjuna. Bylgjurnar í þakinu eiga að tákna öldur hafsins og þær mynda klæðningu neðan í kirkjuloftinu. Ég risti upp kjölinn, sýni böndin áfram í gegnum gluggann og bjó til þakglugga eftir endilögnum kilinum til að kalla niður birtu. Grunnlögun kirkjuskipsins varð því eins og bátsskel í laginu með gleri í mæni og stafni. Þjónustubyggingar sá ég fyrir mér eins og varnarmúr utan um kirkjuskipið sjálft og höfðaði til gömlu íslensku kirknanna með sínum þykku torfveggjum, en þar fyrir innan kom nett og fíngert þak kirkjunnar. Með þessu fannst mér ég tvinna saman tvo heima, þann gamla og hinn nýja.“
Orgel kirkjunnar er 19 radda pípuorgel með 1128 pípum, sem Björgvin Tómasson smíðaði. Skírnarskálina gerði Jónína Guðnadóttir myndlistamaður úr Hafnarfirði. Flygill er í kirkjunni. Kirkjan á bikar, tvær skálar, oblátuskrín, bakka og 98 litla bikara.
Ljósmynd tók Guðmundur Karl Einarsson.


