Mynd sem tengist textanum
Heimilisfang
Kirkjubraut 1, 460 Tálknafirði
Bílastæði
Hljóðkerfi
Safnaðarheimili
Salerni
Streymi
Aðgengi
Kirkjugarður
Fjöldi: 140
Sókn
Stóra-Laugardalssókn

Tálknafjarðarkirkja

Fyrsta skóflustungan að Tálknafjarðarkirkju var tekin þann 6. maí árið 2000 af biskupi Íslands, Karli Sigurbjörnssyni, ásamt Eydísi Huldu Jóhannesdóttur og Friðriki Kristjánssyni. Karl vígði einnig kirkjuna þann 5. maí árið 2002.

Kirkjan er fyrsta timburkirkjan sem byggð hefur verið á Íslandi í háa herrans tíð og er falleg smíði. Arkitekt kirkjunnar er Elísabet Gunnarsdóttir. Altari kirkjunnar er hannað af Hreini Friðfinnssyni úr stuðlabergi sem og altaristaflan sem er stór veggur alsettur glitperlum. Kirkjan sómir sér vel þar sem hún stendur uppi á Þinghól í Tálknafirði og sést víða að úr bænum og nágrenninu.

Vígðir þjónar
Mynd sem tengist textanum
  • Bryndís Svavarsdóttir
  • Sóknarprestur