22. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Í skuld við Guð / Ótakmörkuð fyrirgefning
Grænn.
Vers dagsinsHjá þér er fyrirgefning svo að menn óttist þig. (Slm 130.4)
Kollekta
Drottinn Guð sem ert athvarf okkar og styrkur og einn gefur sanna trú: Heyr bænir kirkju þinnar og lát okkur fá að reyna, að þú veitir okkur það, sem við biðjum um. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Lexía: Am 5. 6-12
Já, ég veit að glæpir yðar eru margir og syndir yðar miklar. Þér þröngvið þeim sem hefur á réttu að standa, þiggið mútur og vísið hinum snauða frá réttinum. Þess vegna þegir hygginn maður á slíkri tíð því að það er vond tíð. Leitið hins góða en ekki hins illa, þá munuð þér lifa og þá verður Drottinn, Guð hersveitanna, með yður eins og þér hafið sagt.
Pistill: 1Kor 16.13-14
Vakið, standið stöðug í trúnni, verið hugdjörf og styrk. Auðsýnið kærleika í öllu sem þið gerið.
Guðspjall: Matt 18.15-20
Ef bróðir þinn syndgar gegn þér] skaltu fara og tala um fyrir honum og sé það ykkar einna í milli. Láti hann sér segjast hefur þú endurheimt bróður þinn. En láti hann sér ekki segjast skaltu taka með þér einn eða tvo að „hvert orð sé staðfest með framburði tveggja eða þriggja vitna“. Ef hann skeytir þeim ekki þá seg það söfnuðinum. Skeyti hann ekki söfnuðinum heldur, sé hann þér sem heiðingi eða tollheimtumaður. Sannlega segi ég yður: Hvað sem þér bindið á jörðu mun bundið á himni og hvað sem þér leysið á jörðu mun leyst á himni. Enn segi ég yður: Ef tveir yðar verða einhuga hér á jörð í bæn sinni mun faðir minn á himnum veita þeim allt sem þeir biðja um. Því að hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni þar er ég mitt á meðal þeirra.“
Sálmur: Sb. 540
1 Hróp mitt er þögult, þú heyrir það samt, þögnin hún ómar í þér, í þér, ómar eins og vatnið, streymandi vatnið. 2 Þrá mín er þögul, þú heyrir hana samt, þráin hún ómar í þér, í þér, ómar eins og vatnið, svalandi vatnið. 3 Bæn mín er þögul, þú heyrir hana samt, bænin hún ómar í þér, í þér, ómar eins og vatnið, lifandi vatnið. Sigurður Pálsson