1. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Köllun í kærleika
Grænn.
Vers dagsins„Sá sem á yður hlýðir hlýðir á mig og sá sem hafnar yður hafnar mér.“ (Lúk 10.16a)
Kollekta
Drottinn Guð, þú sem ert styrkur þeim sem á þig vona: Heyr í náð bænir okkar veikra og dauðlegra barna þinna sem án þín erum vanmegna. Veit okkur af náð þinni hjálp til að þóknast þér í vilja og verki. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda
Lexía: Mík 6.6-8
Hvað á ég að koma með fram fyrir Drottin, fram fyrir Guð á hæðum? Á ég að koma fram fyrir hann með brennifórnir, með veturgamla kálfa? Hefur Drottinn þóknun á þúsundum hrúta og tugþúsundum lækja af ólífuolíu? Á ég að fórna frumburði mínum fyrir synd mína, ávexti kviðar míns fyrir misgjörðir mínar? Maður, þér hefur verið sagt hvað gott er og hvers Drottinn væntir af þér: þess eins að þú gerir rétt, ástundir kærleika og þjónir Guði í hógværð.
Pistill: 1Tím 6.17-19
Vara ríkismenn þessarar aldar við að hreykja sér og treysta fallvöltum auði, bjóð þeim heldur að treysta Guði sem lætur okkur allt ríkulega í té sem við þörfnumst. Bjóð þeim að gera gott, vera ríkir að góðum verkum, örlátir, fúsir að miðla öðrum, með því safna þeir handa sjálfum sér fjársjóði sem er góð undirstaða til hins ókomna og munu geta höndlað hið sanna líf.
Guðspjall: Lúk 12.13-21
Einn úr mannfjöldanum sagði við Jesú: „Meistari, seg þú bróður mínum að skipta með mér arfinum.“ Hann svaraði honum: „Maður, hver hefur sett mig dómara eða skiptaráðanda yfir ykkur?“ Og hann sagði við þá: „Gætið ykkar og varist alla ágirnd. Enginn þiggur líf af eigum sínum þótt auðugur sé.“ Þá sagði Jesús þeim dæmisögu þessa: „Maður nokkur ríkur átti land er hafði borið mikinn ávöxt. Hann hugsaði með sér: Hvað á ég að gera? Nú get ég hvergi komið fyrir afurðum mínum. Og hann sagði: Þetta geri ég: Ég ríf hlöður mínar og reisi aðrar stærri og þangað safna ég öllu korni mínu og auðæfum. Og ég segi við sálu mína: Sála mín, nú átt þú mikinn auð til margra ára, hvíl þig nú, et og drekk og ver glöð. En Guð sagði við hann: Heimskingi, á þessari nóttu verður sál þín af þér heimtuð og hver fær þá það sem þú hefur aflað? Svo fer þeim er safnar sér fé en er ekki ríkur í augum Guðs.“
Sálmur: Sb. 176
1 Hvað stoðar þig allt heimsins góss og gæði og gull og silfur, skart og dýrðleg klæði er ber þú utan á þitt dauðlegt hold? Hvar liggur það þá líkaminn er dauður og langt frá öllu prjáli hvílir snauður í myrkri mold? 2 Veist þú þá ei að dómsins lúður dynur, þá djásnið fölnar, veldisstóllinn hrynur og gullkálfurinn hjaðnar eins og hjóm? Veist þú þá ei að ekkert gildi hefur öll auðlegð heims og neina bót ei gefur við Drottins dóm? 3 Vor auðlegð sé að eiga himnaríki, vor upphefð breytni sú er Guði líki, vort yndi' að feta' í fótspor lausnarans, vor dýrðarskrúði dreyrinn Jesú mæti, vor dýrðlegasti fögnuður og kæti sé himinn hans. Valdimar Briem