Mynd sem tengist textanum
Heimilisfang
Skansvegi 4, 900 Vestmannaeyjar
Bílastæði
Fjöldi: 50

Stafkirkjan í Vestmannaeyjum

Fyrir aldamótin fengu nokkrir Vestmannaeyingar þá hugmynd að fá norska ráðamenn til að styrkja þá í byggingu stafkirkju í tilefni af 1000 ára afmæli hinnar upprunalegu kirkju sem var í Eyjum hér áður fyrr. Norðmenn sýndu hugmyndinni mikinn áhuga og ákváðu að kirkjan yrði gjöf norsku þjóðarinnar til Íslendinga á kristnihátíðinni. Norska þjóðkirkjan ákvað einnig að gefa altarisbrík sem er endurgerð altaristöflu með þjóðardýrlingi Norðmanna, Ólafi helga.

Kirkjan var vígð þann 30. júlí árið 2000 og var Haraldur Noregskonungur viðstaddur athöfnina ásamt eiginkonu sinni, Sonju. Ákveðið var að kirkjan skyldi byggð í Holtalen-stíl, stafkirkjustíl sem algengur var í kringum árið 1000, og standa við Hringskersgarðinn við innsiglinguna inn í Vestmannaeyjahöfn.

Upprunalega kirkjan er talin hafa staðið norðan innsiglingarinnar en sú nýja er staðsett sunnan hennar, á landi sem myndaðist í gosinu á Heimaey árið 1973. Hún er smíðuð af fyrirtækinu Stokk og Stein í Lom og komu norskir smiðir og reistu hana hér. Í kringum endurreisn kirkjunnar voru frægir listamenn í Eyjum og á Íslandi beðnir um að túlka mismunandi Biblíuvers með málverkum. Þessi málverk prýða nú veggi kirkjunnar. Altaristafla Stafkirkjunnar er nákvæm eftirmynd af elstu altaristöflu stafkirkju í Noregi.

Ljósmynd tók Rüdiger Þór Seidenfaden.

Vígðir þjónar
Mynd sem tengist textanum
  • Guðmundur Örn Jónsson
  • Sóknarprestur
Mynd sem tengist textanum
  • Viðar Stefánsson
  • Prestur