
- Gunnar Stígur Reynisson
- Sóknarprestur

Hafnarkirkja var vígð árið 1966 og er arkítekt kirkjunnar var Ragnar Emils, og byggingameistari Guðmundur Jónsson.
Kirkjuskipið rúmar um 200 manns í sæti og til hliðar við það er safnaðarheimili sem hægt er að opna inn í kirkju og þannig stækka kirkjuna. Í safnaðarheimilinu fer einnig fram ýmis kirkjutengd starfsemi.
Skírnarfontur kirkjunnar er skorinn af listamanninum Jóhanni Björnssyni og gefinn kirkjunni til minningar um þá sem fórust með MB. Sigurfara í Hornafjarðarósi árið 1971. Steindir gluggar kirkjunnar eru eftir þýsku listakonuna Maríu Katzgrau. Pípuorgel er í kirkjunni, smíðað árið 1996 og er 23 raddir. Orgelið er dönsk smíði, smíðað af P. Bruhn og søn, með þýskar raddir blandað með frönskum, tvö hljómborð.
Hafnarkirkjugarður er staðsettur fyrir framan kirkjuna
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu prestakallsins.
