
- Ingimar Helgason
- Sóknarprestur

Smíði Langholtskirkju lauk árið 1862, en hún timburreist. Kirkja Meðallendinga var flutt eftir að sóknarkirkjan í Hólmaseli hvarf undir hraun í Skaftáreldum 20. júní 1783. Allir munir og gripir þeirrar kirkju glötuðust. Áður en kirkjan var flutt að Hólmaseli var hún í Skarði til 1750, en þaðan var hún flutt vegna sandfoks. Fyrsta kirkjan í Langholti var torfkirkja, sem var endurbyggð árið 1831. Hún var komin að Hruni árið 1855, þegar ákveðið var að byggja núverandi kirkju.
Kirkjan er með hinu gamla, íslenzka kirkjulagi, með þil milli kórs og framkirkju, og tekur um 140 manns í sæti. Jóhannes Jónsson, snikkari úr Reykjavík, smíðaði hana. Altaristaflan er olíumálverk eftir Anker Lund málaði altaristöfluna árið 1901 og sýnir Jesú Krist og samversku konuna við Jakobsbrunn.
Kirkjan á kaleik og patínu úr silfri frá 1860 og þjónustukaleik og patínu úr silfri frá miðri 19. öld. Einar Einarsson myndskeri frá Fljótum skar út skírnarsáinn árið 1974. Önnur kirkjuklukkan í turninum er frá árinu 1822, hin er talin vera úr Skálarkirkju á síðu sem fór undir hraun í Skaftáreldum 1773. Þriðja klukkan er á kirkjulofti og er skipsklukka úr þýsku skonnortunni Mörthu sem strandaði við Koteyjafjöru árið 1920. Klukkan er þakklætisgjöf til kirkjunnar vegna mannbjörgunar. Nokkrir gripir Langholtskirkju eru í Þjóðminjasafni, þ.á.m. skírnarfat úr tini frá 18. öld.
